Tónlist

Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn til­gangs­lausar og að selja flug­elda inni í helli“

Freyja Þórisdóttir skrifar
Sveitin Superserious er skipuð æskuvinum úr Garðabæ.
Sveitin Superserious er skipuð æskuvinum úr Garðabæ. Aðsend

Íslenska indí-rokksveitin Superserious gefur út nýtt efni nú um hásumar en lagið My phone or something verður aðgengilegt aðdáendum á morgun, föstudaginn 17. júlí. Er þetta önnur smáskífa af væntanlegri breiðskífu sveitarinnar sem mun bera nafnið Superserious or something. 

Þetta er meðal þess sem kemur fram í tilkynningu en þar er einnig greint frá því að lagatextinn sé til þess hugsaður að kafa ogfan í raunveruleika framhjáhalds á okkar tímum.

Hér áður fyrr hafi fólki yfirleitt verið böstað við framhjáhald þegar einhver hreinlega gekk inn á það á ögurstundu. Í dag snúist þetta allt um símann. Lagið fangi þá eitruðu og spennuþrungnu klemmu sem skapist þegar fólk lifi tvöföldu lífi og þurfi stöðugt að fela símann sinn fyrir makanum.

Tvöfalt líf og jafn mörg sjónarhorn

Þetta séu tvö sjónarhorn, annars vegar vers flutt frá sjónarhorni fórnarlambsins sem taki við tómum afsökunum og finni fyrir sársaukanum, hins vegar viðlag sem varpi ljósi á huga framhjáhaldarans einmitt á því augnabliki þegar upp kmist um svikin: „Since you saw my phone, I guess my cover is blown.“

Daníel Jón Baróns, lagahöfundur sveitarinnar, segist hafa viljað skrifa texta um nákvæmlega þessa dýnamík sem hafi með tíð og tíma breyst. Í dag séu farsímar eins konar tifandi tímasprengjur sem geymi öll okkar leyndarmál.

Daníel Jón annaðist listina sem skreytir plötuumslagið.Aðsend

„Símarnir okkar geyma allt, og ef þú ert að halda við einhverja aðra manneskju þá verður síminn að þessari tifandi tímasprengju sem þú þarft stöðugt að vaka yfir,“ er haft eftir honum í tilkynningunni. 

„Lagið leikur sér að augnablikinu þegar allt springur og fórnarlambið þarf að hlusta á þessar innantómu afsakanir sem eru jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli. Versin grípa þennan sársauka hjá þeim sem er svikinn, en í viðlaginu fáum við þetta kalda viðhorf hjá þeim sem var að böstaður, sem pakkar bara saman og fer.“

Æskuvinir úr Garðabæ

Daníel Jón Baróns er sem fyrr segir lagahöfundur sveitarinnar auk þess að syngja og leika á gítar. Kristinn Þór Óskarsson leikur á bassa, gítar og hljómborð, syngur bakraddir og annaðist upptökustjórn. Haukur Jóhannesson leikur á gítar, Sólrún Mjöll Kjartansdóttir trommar og Anita Rós Þorsteinsdóttir syngur bakraddir.

Hljómsveitin Superserious var stofnuð af æskuvinum úr Garðaskóla árið 2021 og vakti fljótt athygli með sigri í Sykurmolanum sama ár. Í október 2022 gaf sveitin út smáskífuna Bye Bye Honey, fyrstu smáskífuna af breiðskífu sveitarinnar. Sama ár kom hún fram á Iceland Airwaves þar sem hún var valin besti nýliði hátíðarinnar.

 Superserious hefur jafnframt hlotið þrjár tilnefningar til Hlustendaverðlaunanna og komið fram á SPOT-tónlistarhátíðinni í Danmörku sem og Iceland Airwaves árið 2023.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.