McIlroy pirraður á athyglissjúkum DeChambeau Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. júlí 2026 22:00 Rory McIlroy hefur ekkert sérstaklega mikið álit á Bryson DeChambeau. getty/Richard Heathcote Rory McIlroy sakaði Bryson DeChambeau um að halda Opna breska meistaramótinu í golfi í gíslingu. DeChambeau fékk tveggja högga refsingu á öðrum hring mótsins í gær.
DeChambeau lék annan hringinn á fjórum höggum undir pari og var í 2. sæti á eftir Lucas Herbert eftir gærdaginn. En hann fékk tveggja högga víti fyrir að laga legu boltans fyrir annað högg sitt á 5. holu vallarins. Eftir refsinguna færðist DeChambeau niður í 5. sætið á samtals fimm höggum undir pari. DeChambeau ræddi lengi við regluverði áður en refsingin var kveðin upp í gær. Er McIlroy var spurður álits á máli DeChambeaus sagði hann að sá bandaríski hefði haft rangt við. „Ég held að það leiki enginn vafi á því að hann bætti baksveifluna,“ sagði McIlroy. „Það skiptir ekki máli hvort þetta var kæruleysi eða viljaverk. Vonandi var þetta kæruleysi en hann verðskuldaði klárlega refsinguna.“ McIlroy var verulega pirraður á því hversu langan tíma allt havaríið tók en rástímar dagsins í dag voru ekki gefnir út fyrr en búið var að leysa úr máli DeChambeaus. „Þetta var langt kvöld fyrir alla. Ég ætla ekki að þykjast verja Bryson. Ég er ekkert sérstaklega mikill aðdáandi hans. Ég held að margt af þessu sé gert fyrir athyglina,“ sagði McIlroy. „Að halda móti svona í gíslingu og láta okkur alla, keppendur og sjálfboðaliða, bíða eftir því að hann fari leit ekki vel út.“ DeChambeau lék þriðja hringinn í dag á einu höggi undir pari og er samtals á sex höggum undir pari í 6. sæti. DeChambeau er fjórum höggum á eftir forystusauðnum Sam Burns. McIlroy lék einnig á einu höggi undir pari í dag. Hann er samtals á tveimur höggum undir pari og situr í 29. sæti. Bein útsending frá lokadegi Opna breska hefst klukkan 08:00 á Sýn Sport á morgun.
Golf Opna breska Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Man. United – Roma | Róm var ekki byggð á einni nóttu Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira