Scheffler segir DeChambeau „klárlega ekki vera svindlara“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. júlí 2026 08:03 Bryson DeChambeau tekur í höndina á Scottie Scheffler í lok annars keppnisdags á Opna breska meistaramótinu í golfi. Getty/Tracy Wilcox Bandaríski kylfingurinn Scottie Scheffler hefur tjáð sig um umdeildasta mál helgarinnar á Opna breska meistaramótinu í golfi, nefnilega refsingu landa síns Bryson DeChambeau.
DeChambeau fékk tveggja högga víti eftir annan hringinn á föstudag fyrir að „bæta svæðið fyrir fyrirhugaða sveiflu sína“ í háu grasi á fimmtu holu á Royal Birkdale-golfklúbbnum. „Það eina sem ég segi er að ég hef þekkt Bryson lengi og hann er margt, en hann er klárlega ekki svindlari,“ sagði Scheffler. „Ég hef aldrei séð hann svindla, hvort sem við vorum í púttkeppni á púttflötinni eða vippkeppni, eða hvenær sem við spiluðum áhugamannagolf, ég sá aldrei neitt grunsamlegt.“ “He’s not a cheater.”Scottie Scheffler talked about the Bryson DeChambeau rules incident, and called for a stricter policing of the rules in professional golf. pic.twitter.com/LalZsMPt13— GOLF.com (@GOLF_com) July 19, 2026 Sjónvarpsendursýningar sýndu DeChambeau taka nokkur há skref þannig að hátt gras fyrir aftan boltann hans lagðist niður í kjölfarið. Framkvæmdastjóri reglumála hjá R&A, Grant Moir, sagði í yfirlýsingu á föstudag að reglan „gildi jafnvel þótt aðgerðin sé óviljandi, eins og var í tilfelli Brysons“. „Þegar maður horfir á hann þarna frá þessu sjónarhorni myndavélarinnar var hann kannski örlítið kærulaus í kringum boltann sinn, en ég held að hann hafi ekki gert neitt af ásettu ráði,“ sagði Scheffler, sem lék lokahringinn á 67 höggum, eða þremur höggum undir pari, og varð jafn í fjórða sæti á samtals sjö höggum undir pari. DeChambeau lék á 69 höggum á laugardag og 72 höggum á sunnudag og lauk keppni á samtals fjórum höggum undir pari, sex höggum á eftir sigurvegaranum Ryan Fox. Hann var í öðru sætinu, einu höggi frá toppnum, eftir að leik lauk á föstudaginn og áður en hann fékk refsinguna. Scottie Scheffler on Bryson DeChambeau: 'He's a lot of things, but he's definitely not a cheater' https://t.co/IUBzwivYzG— Golfweek (@golfweek) July 19, 2026 Scheffler tók einnig undir með Russell Henley og Sam Burns, sem gáfu í skyn að sumir kylfingar væru skoðaðir nánar en aðrir vegna þess að högg þeirra eru svo oft sýnd í sjónvarpi. „Það eina sem ég get í raun sagt er að ég held að við þurfum kannski að vera aðeins strangari í því hvernig við höfum eftirlit með kylfingum, en það er smá jafnvægisatriði því það eru ákveðnir kylfingar eins og Bryson þar sem hvert einasta högg sem hann slær verður sýnt í sjónvarpi,“ sagði Scheffler. „Þegar sjónarhorn myndavéla er langt í burtu geta hlutirnir litið öðruvísi út en þeir gera þegar maður er á staðnum.“
Golf Opna breska Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Steig á liggjandi mótherja en ekkert dæmt Fótbolti Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Giskaði á réttan sigurvegara HM í fimmta skiptið í röð Fótbolti Argentína nú þegar undir rannsókn Fótbolti Drifu sig strax í að rífa upp grasið af HM-vellinum Fótbolti Jóhann Kristinn Gunnarsson: ,, Við þurfum að gera eitthvað róttækt í málunum” Fótbolti Íslenska víkingaklappið lifir: FH-strákarnir unnu Gothia Cup Sport Fleiri fréttir Rory var „fastur í hlutlausum“ allt mótið og segist vera á leið í frí „Ég fann ekki fyrir neinu við púttið því allt skalf svo mikið“ Scheffler segir DeChambeau „klárlega ekki vera svindlara“ Fox sýndi stáltaugar og vann sitt fyrsta risamót Young flaug inn í toppbaráttuna og Scheffler skammt undan Aron og Guðrún með forystu fyrir lokahringinn McIlroy pirraður á athyglissjúkum DeChambeau Burns leiðir á Birkdale og líkur á sögulegum sigri Sá þriðji sem jafnar vallarmetið Púttin að leika Scheffler grátt DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti DeChambeau einu höggi frá toppsætinu eftir fugla á lokaholunum Íslendingar í stórum hlutverkum á The Open Tveir kylfingar jafna besta hringinn á risamóti Stuttu pútti frá besta hring sögunnar „Of mörg heimskuleg mistök“ Hafði aldrei komið til Evrópu en nú er hann efstur á Opna breska Vonar að hann fái að halda áfram að reykja „Er það ekki fullkominn dagur? Golf og fótbolti“ „Ég sef í bílnum ef ég þarf“ „Ég er svo lélegur í golfi“ Ragnhildur hlaut hálfa milljón í þriðja sæti í Englandi Gunnlaugur Árni íþróttakarl ársins í LSU Íslensku liðin hófu leik á Evrópumótinu í holukeppni Gunnlaugur Árni vann Arnold Palmer-bikarinn Tveir íslenskir kylfingar í efstu tíu sætunum Bjargaði fugli úr tjörn í miðjum golfhring Fá að skoða sjúkraskrár Tigers Woods Níu ára fór holu í höggi með ömmu og afa Hvorki Haraldur né Gunnlaugur fara á Opna breska Sjá meira