Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar 25. júlí 2026 08:02 Það er mikið talað um geðheilbrigðismál hér á Íslandi. Það er talað um mikilvægi þess að leita sér hjálpar, um að grípa fólk snemma og um að bati sé mögulegur þegar réttur stuðningur er til staðar. En hvað gerist þegar einstaklingur leitar sér hjálpar, vill fá hjálp og aðstandendur berjast með honum en kerfið segir samt „Nei.“ Ég er aðstandandi einstaklings sem glímir við alvarlegan geðvanda. Einstaklingur sem hefur verið lagður inn á geðdeild, hættir síðan á lyfjum eftir útskrift, glímir við ranghugmyndir, hefur skaðað sjálfan sig og lýsir því yfir að vilja ekki lifa. Við höfum ítrekað óskað aftur eftir innlögn. Í hvert skipti hefur okkur fundist við vera að reyna að sannfæra kerfið um að ástandið sé „nógu alvarlegt“. Hversu alvarlegt þarf það eiginlega að vera? Það sem situr hvað mest í mér er ekki bara höfnunin heldur líka vanmátturinn. Að standa hjá og horfa upp á manneskju biðja um hjálp en á sama tíma upplifir að það sé einfaldlega ekki pláss eða úrræði. Undanfarin ár hafa fjölmiðlar, fagfólk og fólk með eigin reynslu ítrekað bent á alvarlega stöðu geðheilbrigðismála á Íslandi. Það hefur verið rætt um skort á úrræðum, yfirfullar deildir og mikilvægi þess að grípa fólk fyrr. Samt sitja fjölskyldur enn uppi með sömu spurningarnar þegar þær þurfa á kerfinu að halda: Af hverju fær fólk ekki þá hjálp sem það þarf þegar óskað er eftir henni? Ég er nýútskrifaður hjúkrunarfræðingur og ég ætlaði mér lengi að verða geðhjúkrunarfræðingur. Mig langaði að vinna með og aðstoða fólk sem glímir við erfiða geðvanda. En eftir að hafa upplifað geðheilbrigðiskerfið sem aðstandandi hef ég misst allan áhuga á því. Ekki vegna þess að ég ber ekki virðingu fyrir starfsfólkinu, þvert á móti, ég veit að þar starfar margt frábært fólk sem gerir sitt besta við erfiðar aðstæður. Heldur vegna þess að ég gæti ekki unnið í kerfi þar sem mér fyndist ég neyðast til að segja fólki sem augljóslega þarf hjálp að það geti ekki fengið hana. Þetta snýst ekki um að finna sökudólga. Þetta snýst um kerfi sem virðist vera komið að þolmörkum. Af hverju þurfum við að bíða eftir því að eitthvað enn alvarlegra gerist áður en fólk fær hjálp? Af hverju virðist geðheilbrigðisþjónustan svo oft grípa fólk þegar það er orðið of seint en ekki þegar það er enn að biðja um hjálp? Ég veit að fjölskyldan mín er ekki sú eina sem hefur upplifað þetta. Það er nákvæmlega þess vegna sem mér finnst mikilvægt að tala um þetta. Ég skora á stjórnvöld að gera geðheilbrigðisþjónustu að raunverulegu forgangsmáli þannig að fólk fái þá hjálp sem það þarf þegar þess er óskað, ekki þegar það er orðið of seint. Það er ekki aðeins mannúðlegt – það er líka skynsamleg heilbrigðisstefna. Við getum og eigum að gera betur. Höfundur er hjúkrunarfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Geðheilbrigði Mest lesið Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher Skoðun Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir Skoðun Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson Skoðun Haust til hægri Baldvin Björgvinsson Skoðun Stóra samhengið sem gleymdist Eyjólfur Ármannsson Skoðun Núll sem heldur Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Skoðun Skoðun Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson skrifar Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar Skoðun Skiptir máli að skipta máli í vinnunni? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Haust til hægri Baldvin Björgvinsson skrifar Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Það sem ekki sést í Excel-skjali skrifar Skoðun Hver sat við borðið? Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Núll sem heldur Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Grindavík var ekki svartur svanur Snorri Birgisson skrifar Skoðun Stóra samhengið sem gleymdist Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar
Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar