Formúla 1

Hamilton kvartar undan á­kvörðunum Ferrari: „Þetta var frekar slæmt“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lewis Hamilton tapaði dýrmætum stigum í baráttunni um heimsmeistaratitil ökuþóra í ungverska kappakstrinum í gær.
Lewis Hamilton tapaði dýrmætum stigum í baráttunni um heimsmeistaratitil ökuþóra í ungverska kappakstrinum í gær. epa/Zoltan Balogh

Lewis Hamilton var ekki sáttur með ákvarðanir Ferrari í ungverska kappakstrinum í gær og sagði þær hafa kostað sig mikilvæg stig í baráttunni um heimsmeistaratitilinn.

Hamilton endaði í 4. sæti en eftir að hafa fengið fimm sekúndna refsingu færðist hann niður um eitt sæti. Englendingurinn varð því af mikilvægum stigum í baráttunni um heimsmeistaratitil ökuþóra.

Seint í keppninni var Hamilton kallaður inn á þjónustusvæðið til að skipta um dekk á meðan sýndaröryggisbíll var á brautinni. Hann fékk ný dekk en þetta kostaði hann sæti á brautinni í baráttunni við Max Verstappen og Kimi Antonelli. Hamilton náði ekki að vinna sætin sem hann tapaði til baka og fyrir þetta þjónustuhlé fékk hann refsinguna. 

„Þetta var frekar slæmt. Frekar svekkjandi,“ sagði Hamilton eftir keppni gærdagsins.

„Ég held klárlega að við hefðum ekki átt að taka þjónustuhléið en kallið kom rétt áður en ég fór inn og ég hafði engan tíma til að rökræða það.“

Hamilton segir að stoppið hafi reynst dýrkeypt fyrir sig. 

„Ég hefði aldrei stoppað ef það hefði þýtt að ég gæfi eftir stöðu mína á brautinni. Ég hefði kannski getað haldið 2. sætinu. Hann [Verstappen] var að ná mér en líklegast hefði það verið 3. sætið [fyrir framan Antonelli] og það hefði verið miklu betra. Í staðinn tapaði ég fullt af stigum,“ sagði Hamilton.

Fyrir ungverska kappaksturinn var Hamilton 45 stigum á eftir Antonelli í keppni ökuþóra. Nú munar fimmtíu stigum á þeim.

Keppendur í Formúlu 1 fá nú nokkrar vikur til að safna kröftum fyrir seinni hluta tímabilsins. Næsta keppni fer fram í Hollandi 23. ágúst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×