Lægð suður af landinu og hæð yfir Grænlandi Eiður Þór Árnason skrifar 28. júlí 2026 07:25 Eins og oft áður verður verðrinu misskipt. Vísir/Vilhelm Í dag er spáð hægri norðlægri eða breytilegri átt, víða skýjað og smá skúrir en bjart með köflum um landið vestanvert. Stöku síðdegisskúrir og jafnvel hellidembur eftir hádegi. Seint í kvöld fer að rigna norðaustantil.
Norðan 8 til 15 metrar á sekúndu á morgun, hvassast austast og víða dálítil rigning eða súld með köflum en léttskýjað sunnan- og vestantil. Hiti 6 til 17 stig og mildast á Suður- og Vesturlandi. Þetta kemur fram í spá Veðurstofu Íslands. Að sögn veðurfræðings er dálítil lægð suður af landinu og hæð yfir Grænlandi sem gefi fremur hæga norðanátt á landinu. Skýjað verði að mestu á norðan- og austanverðu landinu og lítilsháttar væta öðru hvoru en annars víða bjartviðri. Á morgun er gert ráð fyrir áframhaldandi norðlægri vindátt og verður víða gola eða kaldi en strekkingur austast. Dálítil rigning eða súld á Norður- og Austurlandi og fremur svalt í veðri en bjart með köflum sunnan- og vestantil og allhlýtt. Áfram er útlit fyrir norðlægar áttir með vætusömu og svölu veðri fyrir norðan og austan en lengst af þurru og mildara sunnan- og vestanlands. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Norðlæg átt, 5-10 m/s en 10-15 austast á landinu. Rigning á Norður- og Austurlandi en annars bjart að mestu. Hiti 6 til 17 stig, mildast syðst.Á fimmtudag: Norðvestan 5-13 m/s, væta með köflum á Norður- og Austurlandi og hiti 7 til 11 stig en þurrt annars staðar með hita 12 til 20 stig. Á föstudag: Norðan og norðvestan 5-13 m/s og rigning með köflum, talsverð úrkoma á Norðurlandi en þurrt að mestu sunnan- og vestanlands. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast sunnantil. Á laugardag og sunnudag: Norðan- og norðvestanáttir. Víða rigning eða súld og fremur svalt en úrkomulítið og mun mildara sunnan- og vestantil. Á mánudag (frídagur verslunarmanna): Útlit fyrir fremur hæga norðvestanátt, skýjað að mestu og sums staðar smá skúrir en áfram milt veður.
Veður Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Innlent Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Erlent Kynntu verkefnið Verum viðbúin Innlent Fleiri fréttir Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Sjá meira