Valdi tíu verstu augnablik Stjörnumanna á Skaganum: „Eins og þeir væru drukknir“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. júlí 2026 10:01 Stjörnumenn gengu fram af Alberti Ingasyni með frammistöðu sinni gegn Skagamönnum. sýn sport Venjulega þegar Albert Ingason gerir lista lætur hann fimm atriði nægja. Honum þótti það þó ekki nóg til að gera því skil hversu illa Stjarnan spilaði í 5-1 tapinu fyrir ÍA á sunnudaginn var.
Stjarnan hefur tapað síðustu tveimur leikjum sínum í Bestu deild karla með markatölunni 1-10 og er aðeins tveimur stigum frá fallsæti. Albert greindi frammistöðu Stjörnunnar gegn ÍA í Stúkunni í gær og ákvað að velja tíu lágpunkta Garðbæinga í leiknum. „Öll umræða er um Árna Snæ [Ólafsson, markvörð Stjörnunnar] í þessum leik. Hann gefur tvö mörk. Jón Þór [Hauksson, þjálfari Stjörnunnar] talaði um hversu lélegir þeir væru án bolta og hvað þeir settu í leikinn. En mér finnst ósanngjarnt að taka einn fyrir,“ sagði Albert. Klippa: Stúkan - tíu verstu augnablik Stjörnunnar „Yfirleitt þegar ég er með lista er ég með fimm atvik. En hann var bara það langur að ég stoppaði bara í tíu svo við verðum ekki hérna í allt kvöld.“ Albert byrjaði svo að sýna gloríur Garðbæinga úr leiknum. „Það voru ekki bara 1-2 sem áttu hauskúpuleik. Það var allt liðið. Það er enginn sem nær fimm í einkunn. Það var eins og þeir væru drukknir að spila þarna inn á,“ sagði Albert. Næsti leikur Stjörnunnar er gegn Ilves í Finnlandi á fimmtudaginn. Stjörnumenn unnu fyrri leikinn í einvíginu, 2-1, og með hagstæðum úrslitum í Finnlandi tryggja þeir sér sæti í 3. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu. Í næsta leik sínum í Bestu deildinni sækir Stjarnan Val heim. Leikurinn fer fram á Hlíðarenda næsta þriðjudag. Innslagið úr Stúkunni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Besta deild karla Stjarnan Stúkan Tengdar fréttir Uppgjörið: ÍA-Stjarnan 5-1 | Draumabyrjun ÍA í martraðarheimkomu Jóns Þórs Skagamenn skoruðu þrjú mörk á fyrstu 26 mínútunum og unnu sannfærandi 5-1 sigur á Stjörnumönnum í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld þegar Jón Þór Hauksson, fyrrverandi þjálfari Skagamanna, mætti með Garðabæjarliðið á sinn gamla heimavöll. 26. júlí 2026 21:13 Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Golf „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Íslenski boltinn Hættir hjá Nike og tekur óvænt skref Fótbolti Krefjast tíu milljóna dollara til allra aðildarríkja FIFA Fótbolti JJ Gabriel mættur til Barcelona Enski boltinn Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands Enski boltinn Selfyssingar skoruðu öll mörkin í úrslitaleiknum Íslenski boltinn Flestir Íslendingar halda með Liverpool Enski boltinn „Algjör óþarfi fyrir dómarann að vera búa til svona úlfalda úr mýflugu“ Sport Fleiri fréttir Menn eigi ekki að bugast yfir pressu og ávísun Kraftaverkamaðurinn á Húsavík hættur Stór dagur fyrir Ottesen fjölskylduna „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Selfyssingar skoruðu öll mörkin í úrslitaleiknum Uppgjörið:Fram - Víkingur 2-2 | Tvö rauð á teymi Víkinga í dramatísku jafntefli „Töpuðum á réttan hátt” „Fannst á tímabili eins og við gætum spilað í 200 mínútur án þess að skora” „Meira sem að þeir þurfa að hafa áhyggjur af hjá okkur“ Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 4-3 | Bikarþynnka í Vestmannaeyjum Uppgjörið: FH - Stjarnan 1-0 | Halda titilbaráttunni jafnri Myndavélar settar upp eftir skemmdarverkin og allt klárt fyrir risaleik „Keyra á ljósabekkina“ fyrir úrslitaleikinn Skotin flugu milli Bolla og Hjamma FH-stelpur meistarar en KSÍ kom ekki með bikar Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 4-1| Breiðablik kláraði þetta í fyrri hálfleik „Hversu mikil pressa var á honum?“ Sjáum til hvort þetta verði algjör þvæla Seldur frá Keflavík til Sýrlands „Hinna klúbbanna á Íslandi að elta þá“ Markvörður KR fór ítrekað fram: „Alveg stjörnubilað að horfa á þetta“ Sjáðu fyrsta mark Gabríels og flugskalla í rangt mark Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Haukar og Selfoss leika til úrslita Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ „Blikarnir geta sleppt sér lausum“ Sjáðu mörkin: Bomba í slá og inn beint af æfingasvæðinu „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Sjá meira
Uppgjörið: ÍA-Stjarnan 5-1 | Draumabyrjun ÍA í martraðarheimkomu Jóns Þórs Skagamenn skoruðu þrjú mörk á fyrstu 26 mínútunum og unnu sannfærandi 5-1 sigur á Stjörnumönnum í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld þegar Jón Þór Hauksson, fyrrverandi þjálfari Skagamanna, mætti með Garðabæjarliðið á sinn gamla heimavöll. 26. júlí 2026 21:13