Formúla 1 leitar til Evrópu ef stríðsátökin halda áfram Andri Broddason skrifar 29. júlí 2026 18:01 Tímabilið í Formúlu 1 hefur síðustu ár klárast í Abu Dhabi en ekki er víst hvort það verði hægt í ár. Vísir/Getty Ef átökunum mun ekki linna í Mið-Austurlöndum mun Formúla 1 ekki halda kappakstur þar á þessu tímabili. Verið er að finna lausnir ef þörf er á að færa keppnirnar sem eiga að vera nálægt átakasvæðunum til Evrópu.
Stefano Domenicali, forseti Formúlu 1, hefur staðfest að á meðan átök eru í Mið-Austurlöndunum verður ekki kappakstur þar. Síðustu tvær keppnir tímabilsins eiga að vera í Katar og Sameinuðu arabísku furstadæmunum en verið er að skoða aðra möguleika innan Evrópu ef enn eru átök á svæðinu. Stjórn Formúlu 1 hefur gefið sér frest til september til að taka endanlega ákvörðun um hvort tímabilið klárist á upprunalegu stöðunum eða í Evrópu. Nú í vikunni var tekin ákvörðun um að Barein-kappaksturinn, sem var frestað í byrjun tímabils vegna stríðsátaka Mið-Austurlandanna, yrði haldinn í Malasíu. Aðrar mótaraðir í kappakstri hafa endurhugsað keppnir í Mið-Austurlöndum og hefur heimsmeistaramótið í þolakstri (e. World Endurance Championship) hætt við sínar keppnir á átakasvæðunum. Eins og staðan er núna verður keppt í bæði Katar og Sameinuðu arabísku furstadæmunum en ef ástandið lagast ekki munu keppnirnar verða færðar til Evrópu. Lokakeppnir tímabilsins í Formúlu 1 eiga að vera 29. nóvember og 6. desember og á þeim árstíma er virkilega kalt í Evrópu. Domenicali hefur þó engar áhyggjur af því að bílarnir þoli ekki kuldann enda hefur verið keppt í Las Vegas á þessum tíma ársins þar sem vanalega er kaldara en í Evrópu.
Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár „Mér finnst ég vera byggður öðruvísi“ Átti erfitt fyrsta tímabil en getur nú skrifað söguna Segir ekki mikil gæði vera hjá ökumönnum í Formúlu 1 Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari Kimi Antonelli á ráspólnum á morgun „Að lokum þurfum við að frelsa Kongó, frelsa Súdan, frelsa Sýrland og frelsa Palestínu“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Tætir í sig „siðferðislega óréttlætanlega“ ákvörðun Formúlu 1 Antonelli getur orðið yngsti heimsmeistari sögunnar í næstu keppni Formúla 1 snýr aftur til Afríku Hlustaði ekki á liðið og baðst afsökunar Fór fram úr Verstappen og svo fram úr sér Býður við skrifunum: „Ég er Satan“ Hamilton vonast til þess að keppa í Afríku Varað við miklum hita yfir kappakstrinum í Singapúr Kláraði að hjóla 420 km á fjórum dögum fyrir kappakstur Áföllin halda áfram að dynja á Russell Vill sjá breytingar svo það komi ekki annað klúður Hjólar yfir 350 kílómetra í næstu keppni Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Sjáðu ruglið í Formúlunni í morgun Verstappen vann skrautlega keppni Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Kunnugleg framlína í Malasíu Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Sjá meira