Er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn á Opna breska Andri Broddason skrifar 1. ágúst 2026 22:01 Yealimi Noh er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn á Opna breska risamótinu í golfi. Warren Little/Getty Images Yealimi Noh er í efsta sæti Opna breska risamóts kvenna í golfi eftir slæman hring hjá Haeran Ryu. Hún er með þriggja högga forskot á næstu kylfinga.
Haeran Ryu hefur unnið tvö risamót á árinu og var á góðri leið með að setja sig í frábæra stöðu til að vinna þriðja risamótið sitt á árinu. Það gekk hins vegar ekki hjá henni í dag þar sem hún fékk fimm skolla á átta holu kafla og endaði hringinn á þremur höggum yfir pari. Yealimi Noh nýtti sér mistök Ryu og lék hringinn í dag á tveimur höggum undir pari. Hún er þá samtals sjö höggum undir pari. Hún virtist ekki ætla að nýta sér mistök Ryu til að byrja með þar sem Noh fékk þrjá skolla á fyrri níu holunum. Hún náði þó að koma sér aftur á strik með því að fá þrjá fugla í röð og samtals fimm fugla á hringnum. Nelly Korda, kylfingurinn sem er númer eitt á heimslistanum, hefur ekki alveg náð sér á strik á mótinu og er í sextánda sæti á einu höggi yfir pari. Hún virtist ætla að enda hringinn í dag á pari en fékk tvöfaldan skolla á síðustu holunni. Hún er því átta höggum frá Noh í efsta sætinu og því ólíklegt að hún muni ná í sigur á mótinu. Pakkinn fyrir aftan Noh er þéttur en alls eru fimm kylfingar jafnir í öðru sæti á fjórum höggum undir pari. Það verður því hörð barátta á lokahring mótsins á morgun og geta enn verið miklar sviptingar á töflunni. Lokahringur Opna breska risamóts kvenna í golfi verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn sport 4 klukkan 11 á morgun.
Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Man. United – Roma | Róm var ekki byggð á einni nóttu Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira