Donald Trump tók við verðlaunum sem klúbbmeistari á sínum eigin velli Andri Broddason skrifar 2. ágúst 2026 20:45 Donald Trump hefur spilað mikið golf á sinni lífsleið og hættir því ekki þó að hann sé forseti Bandaríkjanna. Andrew Harnik/Getty Images Donald Trump Bandaríkjaforseti tók á móti tvennum verðlaunum á klúbbmeistaramóti Bedminster. Þar er hans eigin golfvöllur og tók hann við verðlaunum sem klúbbmeistari öldungaflokks og sem heildarklúbbmeistari.
Við verðlaunaafhendingu á klúbbmeistaramótinu á Donald Trump-vellinum í Bedminster var tilkynnt að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefði farið völlinn á 70 höggum og varð þar með klúbbmeistari. Hann vann ekki einungis öldungaflokkinn heldur var hann einnig á lægsta höggafjölda allra sem tóku þátt í mótinu. Þetta eru fertugustu titlar hans á sínum eigin völlum en hann á fimmtán golfvelli um allan heim. Á síðasta ári varð hann einnig klúbbmeistari í Bedminster en þá fór hann hringinn á 69 höggum. Þetta er frábært skor hjá Bandaríkjaforsetanum en einhverjir draga í efa að hann geti spilað svona vel. Trump er áttræður og hefur sjálfur sagt að hann sé á toppi golfferilsins síns. Íþróttafréttamaðurinn Rick Riley hefur ásakað Trump um að svindla á golfvellinum og eru aðrir á sama máli. Just to recap... the world's biggest golf cheater says the guy who got caught cheating wasn't really cheating. https://t.co/UTJcajRf7F— Rick Reilly (@ReillyRick) July 25, 2026 Reynst hefur erfitt að sanna hvort að Trump hafi náð svona lágu skori eða ekki en það hentar að vera eigandi klúbbs þar sem þú vinnur alla þína titla.
Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira