Golf

Tíu fyrrum Ís­lands­meistarar keppa á Ís­lands­mótinu í golfi í ár

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dagbjartur Sigurbrandsson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir unnu Íslandsmeistaratitilinn í fyrra og ætla bæði að verja hann í ár.
Dagbjartur Sigurbrandsson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir unnu Íslandsmeistaratitilinn í fyrra og ætla bæði að verja hann í ár. GSÍMyndir

Íslandsmótið í golfi verður haldið á Korpúlfsstaðavelli í vikunni en keppni hefst á fimmtudaginn kemur. Nú vitum við allt um keppendalistann og þar er nóg af fólki sem þekkir það að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn.

Alls eru tíu Íslandsmeistarar á meðal þeirra kylfinga sem taka þátt í mótinu að þessu sinni og þar á meðal eru þau Dagbjartur Sigurbrandsson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir sem unnu titilinn í fyrra og ætla að verja hann í ár.

Sex Íslandsmeistarar eru á meðal þeirra 92 kylfinga sem taka þátt í karlaflokki en fjórir Íslandsmeistarar eru á meðal þeirra 40 kylfinga sem taka þátt í kvennaflokki.

Ríkjandi Íslandsmeistarinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir vann sinn fjórða Íslandsmeistaratitil á Hvaleyrarvelli í fyrra eftir umspil við Huldu Clöru Gestsdóttur. Áður hafði hún sigrað þrjú ár í röð, frá 2018 til 2020. 

Guðrún Brá hefur þegar unnið Íslandsmeistaratitil á árinu, en hún varð Íslandsmeistari í holukeppni á Urriðavelli í júní. Þá stóð hún einnig uppi sem sigurvegari í Hvaleyrarbikarnum í júlí og hefur því unnið bæði mót sín hér á landi í sumar.

Atvinnukylfingurinn Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR er forgjafarlægsti kylfingurinn á keppendalistanum og er meðal þeirra kvenna sem hafa orðið Íslandsmeistari en Ragnhildur varð Íslandsmeistari árið 2023 og hefur margoft verið í baráttu um titilinn.

Auk Guðrúnar Brár og Ragnhildar eru fyrrum Íslandsmeistarar þær Perla Sól Sigurbrandsdóttir, sem varð Íslandsmeistari í Vestmannaeyjum árið 2022, og Þórdís Geirsdóttir úr Keili, sem varð Íslandsmeistari árið 1987.

Ríkjandi Íslandsmeistari karla, Dagbjartur Sigurbrandsson, mætir í titilvörn á heimavelli og hann er líka forgjafarlægstur af öllum kylfingum.

Dagbjartur vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil á Hvaleyrarvelli í fyrra eftir mikla spennu á lokahringnum. Hann lék hringina fjóra á fimm höggum undir pari og varð einu höggi á undan Axel Bóassyni. Axel Bóasson hefur þrívegis orðið Íslandsmeistari eða árin 2011, 2017 og 2018.

Aron Snær Júlíusson hefur tvívegis orðið Íslandsmeistari, árin 2021 og 2024. Í síðari sigrinum setti hann nýtt mótsmet þegar hann lék Hólmsvöll á 14 höggum undir pari. Hann varð einnig jafn í þriðja sæti á Íslandsmótinu í fyrra.

Aðrir sem keppa í ár og hafa orðið Íslandsmeistarar eru Kristján Þór Einarsson (2008 og 2022), Guðmundur Ágúst Kristjánsson (2019) og Logi Sigurðsson (2023).

Keppendur í karlaflokki koma frá tólf golfklúbbum. Golfklúbbur Reykjavíkur á flesta keppendur, eða 23, sem fá tækifæri til að leika um Íslandsmeistaratitilinn á heimavelli. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar á 17 keppendur, Keilir tólf og Golfklúbbur Akureyrar tíu.

Golfklúbbur Reykjavíkur á líka flesta keppendur í kvennaflokki, alls tíu. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar á níu kylfinga, en Golfklúbbur Mosfellsbæjar og Golfklúbburinn Keilir eiga átta hvor. Alls eiga tólf golfklúbbar kylfinga í kvennaflokki mótsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×