Vann Einvígið á Nesinu annað árið í röð Andri Broddason skrifar 3. ágúst 2026 20:00 Tómas Eiríksson Hjaltested, frá GR, hafði betur í Envíginu á Nesinu annað árið í röð. Nesklúbburinn Tómas Eiríksson Hjaltested frá Golfklúbbnum í Reykjavík vann Einvígið á Nesinu annað árið í röð. Hann vann Guðrúnu Brá Björgvinsdóttir á lokaholunni.
Einvígið á Nesinu er árlegt góðgerðamót þar sem mörgum af bestu kylfingum landsins er boðið að spila. Í ár var spilað til styrktar Bergsins sem eru samtök sem styðja við andlega líðan ungs fólks. Tíu kylfingar mættu til leiks á Seltjarnarnesið í dag en kylfingarnir falla úr leik hver á fætur öðrum. Á fyrstu holunni fellur kylfingurinn úr leik sem er lengst frá eftir þrjú högg, á annarri holu fellur kylfingurinn úr leik sem er fjærst holunni eftir tvö högg og svo fellur kylfingurinn sem fer holuna á flestum höggum úr leik. Mikil spenna ríkti í Einvíginu en þegar hafið var leik á áttundu holu voru Gunnlaugur Árni Sveinsson, Tómas Eiríksson Hjaltested og Guðrún Brá Björgvinsdóttir eftir. Þar datt Gunnlaugur Árni úr keppni og Guðrún Brá og Tómas mættust á úrslitaholunni. Á lokaholunni skaut Guðrún Brá upphafshöggi sínu út fyrir endamörk vallarins og þurfti hún að taka því þriðja högg af teig. Þá var eftirleikurinn fyrir Tómas auðveldur og spilaði hann holuna öruggt og náði því að verja titilinn sinn í Einvíginu á Nesinu.
Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira