Til hvers erum við að breyta námsmatinu? Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar 13. ágúst 2026 07:31 Menntamálaráðherra hefur boðað breytingar á námsmati í grunnskólum þar sem meðal annars stendur til að nemendur útskrifist úr grunnskóla með einkunnir í tölum í stað bókstafa. Rökin eru að gera þurfi námsmat skýrara, gegnsærra og samræmdara. Við fyrstu sýn kann þetta að hljóma einfalt og jafnvel sjálfsagt. En áður en ráðist er í breytingar sem hafa áhrif á alla grunnskóla landsins ættum við að staldra við og spyrja einfaldrar spurningar: Hvaða vandamál erum við að reyna að leysa? Breytingar þurfa tilgang Michael Fullan, einn þekktasti fræðimaður heims á sviði skólaþróunar og breytingastjórnunar í menntakerfum, hefur fjallað ítarlega um hvað þurfi til að breytingar nái fótfestu. Í bók sinni Leading in a Culture of Change leggur hann meðal annars áherslu á skýran tilgang breytinga, skilning á breytingaferlinu, sterk tengsl haghafa og að skapa sameiginlegt samhengi. Breytingar verða ekki farsælar með fyrirmælum einum saman. Þær þurfa að byggjast á þátttöku, þekkingu og sameiginlegum skilningi þeirra sem eiga að hrinda þeim í framkvæmd. Það er því ekki nóg að stjórnvöld ákveði að breyta kerfi vegna þess að nýtt fyrirkomulag virðist einfaldara eða samræmdara. Það þarf að liggja skýrt fyrir hvernig breytingin muni bæta nám og stöðu nemenda. Núverandi námsmat í grunnskólum byggir á hæfni nemenda. Við lok grunnskóla fá framhaldsskólar upplýsingar um stöðu þeirra og nemendur hefja nám á því hæfniþrepi sem hentar þeim. Sumir hefja nám í ákveðinni grein á fyrsta þrepi, aðrir á öðru, og halda síðan áfram að byggja ofan á þá þekkingu og hæfni sem þeir hafa þegar öðlast. Kerfið er vissulega ekki fullkomið. Ekkert námsmatskerfi er það. En ef því á að breyta ætti að liggja skýrt fyrir hvað virkar ekki. Samræming er ekki markmið í sjálfu sér Undanfarið hefur aukin áhersla verið lögð á samræmingu í íslensku grunnskólakerfi. Samræmt námsmat, samanburðarhæfar niðurstöður og nú samræmdari einkunnagjöf. Samræming getur vissulega haft kosti. Hún getur veitt upplýsingar um stöðu skólakerfisins og hjálpað okkur að sjá hvar þörf er á stuðningi. En það er líka athyglisvert hversu hátt ákallið um samræmingu hljómar þegar kemur að grunnskólanum. Sama ákall virðist ekki heyrast með sama hætti þegar rætt er um önnur skólastig, þar sem fjölbreyttar leiðir og ólíkar nálganir eru jafnvel taldar styrkleiki. Það vekur upp spurningu um hvers vegna samræming sé orðin svo fyrirferðarmikið markmið í grunnskólanum. Samræming má ekki verða markmið í sjálfu sér. Grunnskólar eiga fyrst og fremst að stuðla að námi og þroska barna. Námsmat á að gefa nemandanum upplýsingar um hvað hann kann, hvar styrkleikar hans liggja og hvert næsta skref í náminu er. Þess vegna ætti spurningin ekki fyrst og fremst að vera hvort auðveldara sé að bera saman 8,7 og 9,2 en B+ og A. Spurningin ætti að vera hvort breytingin leiði til betra náms. Viljum við þróun þar sem námsmat verður að röðunartæki? Það er einnig ástæða til að ræða hvaða áhrif tölueinkunnir geta haft við inntöku í framhaldsskóla. Tölur gefa möguleika á mun nákvæmari röðun nemenda. Tveir nemendur sem samkvæmt hæfnimiðuðu námsmati gætu staðið mjög svipað geta skyndilega verið aðgreindir með 8,8 og 9,1. Þá vaknar önnur mikilvæg spurning: Er námsmat við lok grunnskóla fyrst og fremst ætlað að lýsa hæfni nemandans og styðja við áframhaldandi nám hans eða á það að auðvelda framhaldsskólum að raða nemendum? Það er vel þekkt að sumir framhaldsskólar eru eftirsóttari en aðrir og ekki útilokað að sjónarmið ákveðinna foreldra hafi haft áhrif á þessa umræðu. Því er eðlilegt að spyrja hvort nákvæmari töluleg röðun nemenda muni í reynd auka samkeppni um þessa skóla. Það þarf ekki að vera yfirlýst markmið breytingarinnar til þess að verða afleiðing hennar. Hvar er fagfólkið í breytingaferlinu? Svo er það breytingaferlið sjálft. Ef breyta á námsmati í öllum grunnskólum landsins ætti að vera sjálfsagt að kennarar og skólastjórnendur séu virkir þátttakendur í mótun breytinganna frá upphafi. Ekki eingöngu vegna þess að gott sé að hafa samráð, heldur vegna þess að þetta er fólkið sem á að framkvæma breytingarnar og býr yfir fagþekkingu á námsmati og áhrifum þess á nám og kennslu. Fullan hefur einmitt bent á að eignarhald á breytingum verður ekki til með því að kynna fólki fullmótaða ákvörðun og biðja það síðan um að innleiða hana. Fagfólk þarf að skilja tilganginn, taka þátt í samtalinu og fá tækifæri til að móta framkvæmdina. Það er sérstaklega mikilvægt í skólastarfi. Kennarar eru ekki tæknilegir framkvæmdaraðilar ákvarðana sem teknar eru annars staðar. Þeir eru sérfræðingar í námi og kennslu. Byrjum á réttu spurningunum Ég er ekki á móti breytingum í skólastarfi. Þvert á móti. Skólastarf er endalaus þróunarvinna þar sem stöðugt er verið að reyna að gera betur. En mig langar til að hvetja okkur til að staldra við áður en við breytum námsmati hundruða kennara og þúsunda nemenda. Spyrjum okkur eftirfarandi spurninga: Hvaða vandamál er verið að leysa? Hvaða gögn sýna að núverandi fyrirkomulag sé vandamál? Hvernig mun breytingin bæta nám nemenda? Hvaða áhrif mun hún hafa á kennsluhætti? Hvaða áhrif mun hún hafa á samkeppni og inntöku í framhaldsskóla? Og síðast en ekki síst: Hvað segir fagfólkið sem vinnur með námsmat á hverjum degi? Kannski er mikilvægasta spurningin alls ekki hvort við eigum að gefa nemendum A, B eða 9,2. Spurningin er til hvers við erum að meta nám nemenda. Er námsmatið fyrst og fremst til þess að styðja nám nemandans og vísa veginn áfram eða til þess að auðvelda kerfinu að bera nemendur saman og raða þeim? Svarið við þeirri spurningu ætti að liggja fyrir áður en kerfinu er breytt. Höfundur er skólastjóri í Sæmundarskóla og formaður Félags skólastjórnenda í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Grunnskólar Mest lesið Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heilarotnun og hugræktarstöðvar á tímum gervigreindar Þórhallur Magnússon skrifar Skoðun Pitsuostur, alþjóðaviðskipti og almannahagur Ólafur Stephensen skrifar Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: sjálfræði, mannréttindi og mörk samfélagsins Steinar Harðarson skrifar Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir skrifar Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Sjá meira
Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun
Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar
Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar
Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar
„Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun