Eyjaálfa, fyrir utan Nýja-Sjáland, styður Infantino Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. ágúst 2026 08:31 Gianni Infantino berst nú við að halda völdum hjá FIFA. epa/Mario Baos Knattspyrnusamband Eyjaálfu hefur lýst yfir stuðningi við Gianni Infantino, forseta FIFA. Nýja-Sjáland er þó ekki í þeim hópi.
Knattspyrnusambönd Evrópu, Asíu og Norður- og Mið-Ameríku hafa dregið stuðning sinn við Infantino til baka eftir mislukkaða tilraun hans til að selja hlut í HM, og öðrum mótum á vegum FIFA, til einkafjárfesta. Infantino nýtur þó enn stuðnings knattspyrnusambanda Afríku og Suður-Ameríku og nú hefur Eyjaálfa bæst í þann hóp. Aðeins ellefu ríki eiga aðild að knattspyrnusambandi Eyjaálfu en það fjölmennasta og eina sem spilaði á HM í sumar, Nýja-Sjáland, styður ekki Infantino og kallar eftir óháðri úttekt á fyrirhuguðum hugmyndum hans um að selja innviði FIFA. Knattspyrnusamband Eyjaálfu (OFC) kveðst ánægt með að Infantino hafi fallið frá fyrirætlunum sínum en styður enn við bakið á forsetanum umdeilda. „Framkvæmdastjórn OFC fagnar ákvörðun FIFA um að draga til baka tillögu FFE (FIFA Forward Enterprise) og skuldbindingu þess um að endurskoða málefnin sem tengjast verkefninu,“ segir í yfirlýsingu OFC. „OFC er meðvitað um þann árangur sem náðst hefur síðasta áratuginn við að efla fótboltaþróun í Eyjaálfu undir forystu FIFA og hvetur FIFA til að nota endurskoðunina sem tækifæri til að greina og innleiða allar breytingar sem kunna að vera nauðsynlegar.“ Kosið verður til forseta FIFA á ársþingi sambandsins í mars á næsta ári. Enn hefur enginn boðið sig fram gegn Infantino.
FIFA Nýja-Sjáland Deilur um Gianni Infantino Tengdar fréttir Bara hægt að koma Infantino frá völdum með kosningum Forseti knattspyrnusambands Afríku hefur varað fótboltaheiminn við því að þrátt fyrir mikla pressu úr öllum áttum á forseta Alþjóðaknattspyrnusambandsins þá verði aðeins hægt að koma Gianni Infantino frá völdum með atkvæðagreiðslu. 13. ágúst 2026 18:31 Fleiri styðja UEFA frekar en Infantino Írska knattspyrnusambandið hefur dregið til baka stuðning sinn við Gianni Infantino, forseta FIFA. Sambandið ætlar frekar að standa með UEFA gegn Infantino. 13. ágúst 2026 13:02 Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Fótbolti „Við þurfum að gera margt betur“ Körfubolti Sjáðu mörk Orra og Mikaels gegn Búlgaríu Fótbolti Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Fótbolti Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Körfubolti FH hélt Selfossi á botninum Handbolti Fleiri fréttir Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku „Mikael Anderson kom inn með þvílíka orku“ „Eistar eru með uppskriftina gegn Íslandi“ Einkunnir Íslands: Orri Steinn og Hákon Arnar báru af Yamal með glæsimark í enn einum sigri Spánar „Lærði bara mikilvæga reglu“ Eistar bjuggu til toppslag við Íslendinga Sjáðu mörk Orra og Mikaels gegn Búlgaríu „Erum að spila á móti ofboðslega slöku liði“ „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Söguleg niðurlæging í Króatíu Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Lagði upp í öruggum sigri Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Klopp býður við rasískum ásökunum Er katastrófa að vinna ekki í dag? Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sjá meira
Bara hægt að koma Infantino frá völdum með kosningum Forseti knattspyrnusambands Afríku hefur varað fótboltaheiminn við því að þrátt fyrir mikla pressu úr öllum áttum á forseta Alþjóðaknattspyrnusambandsins þá verði aðeins hægt að koma Gianni Infantino frá völdum með atkvæðagreiðslu. 13. ágúst 2026 18:31
Fleiri styðja UEFA frekar en Infantino Írska knattspyrnusambandið hefur dregið til baka stuðning sinn við Gianni Infantino, forseta FIFA. Sambandið ætlar frekar að standa með UEFA gegn Infantino. 13. ágúst 2026 13:02