Óliver var með funheitan pútter Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. ágúst 2026 17:31 Óliver Elí Björnsson kyssir hér bikarinn sem hann fékk fyrir sigur sinn á Opna breska áhugamannamóti pilta í gær. Getty/Oisin Keniry Óliver Elí Björnsson úr Golfklúbbnum Keili vann sögulegan íslenskan sigur og náði besta árangri íslensks kylfings í flokki átján ára og yngri frá upphafi þegar hann vann magnaðan sigur á Opna breska áhugamannamóti pilta í gær.
Óliver Elí tryggði sér titilinn þegar hann hafði betur gegn Svíanum Ludwig Libera í 37 holu úrslitaleiknum en íslenski kylfingurinn landaði sigrinum með því að ná fugli á fyrstu holu bráðabanans. Óliver Elí var þarna að vinna eitt sterkasta unglingamót Evrópu og eitt elsta golfmót heims, en það var nú haldið í 106. sinn. Á meðal fyrrverandi sigurvegara eru stórstjörnur á borð við José María Olazábal, Sergio García og Matthew Fitzpatrick. „Vá, þvílík vika hér í Skotlandi. Ég hefði aldrei trúað því eða sagt að ég væri sigurvegari The Boys Amateur Championship,“ skrifaði Óliver Elí á samfélagsmiðla sína. „Mér tókst að spila virkilega traust og stöðugt golf eftir fyrsta hringinn og komst í gegnum niðurskurðinn á hárréttri tölu,“ skrifaði Óliver. „Ég er virkilega ánægður með hvernig ég spilaði í holukeppninni og það hjálpaði mikið að vera með funheitan pútter,“ skrifaði Óliver. Hann lenti um tíma þremur holum undir á móti Svíanum en Óliver sýndi þá enn á ný þá miklu yfirvegun og baráttu sem einkenndi frammistöðu hans alla vikuna. Eftir tólf holur seinni hringsins var Svíinn kominn með þriggja holu forskot en okkar maður hélt haus, jafnaði leikinn á 17. holunni og tryggði sér svo titilinn á fyrstu holu bráðabanans.
Golf Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Man. United – Roma | Róm var ekki byggð á einni nóttu Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira