Sigurinn sögulegi breytt miklu fyrir Óliver: „Mjög mikill heiður“ Aron Guðmundsson skrifar 18. ágúst 2026 10:00 Óliver Elí Björnsson er fyrsti Íslendingurinn til þess að vinna opna breska áhugamannamótið í flokki ungmenna. Mótið er eitt það stærsta í Evrópu. Aðsend mynd Óliver Elí Björnsson, sextán ára kylfingur úr Golfklúbbnum Keili, gerði sér lítið fyrir og vann opna breska áhugamannamót pilta í golfi. Pilturinn hefur hlotið verðskuldaða athygli í kjölfarið og stefnir langt í íþróttinni. Hann mátti vart vera að því að taka upp úr ferðatöskunni þegar heim var komið því stórt mót með úrvalsliði Evrópu tekur nú við.
Óliver er fyrsti Íslendingurinn til þess að vinna mótið sem er eitt það stærsta í flokki ungmenna í Evrópu en meðal þeirra sem hafa unnið mótið í glæstri sögu þess eru vel þekktir kylfingar á borð við Matthew Fitzpatrick, Sergio Garcia og Jose Maria Olazábal. „Að vera fyrsti Íslendingurinn til að afreka þetta er mjög mikill heiður og það var bara ótrúlega gaman að ná að gera þetta,“ segir Óliver Elí í samtali við íþróttadeild Sýnar. Þegar að þú heldur inn í þetta mót, var þetta eitthvað sem þú varst að búast við? „Ekki beint. Leikurinn minn var ekki alveg á þeim stað sem ég vildi. Ég var ekki að slá mitt besta en svo þegar að mótinu kom fór þetta allt í gang. Ég náði líklegast að spila mitt besta golf á ævinni til þessa.“ Steig upp eftir erfiða byrjun Fyrsti hringur Ólivers á mótinu lofaði ekki svo góðu. Hann fór hann á fimm höggum yfir pari og var um sex höggum frá niðurskurðalínunni fyrir annan hring mótsins sem átti eftir að skera úr um framhald hans á mótinu. Þann hring fór Óliver á tíu höggum undir pari, bætti sig um tíu högg milli hringa og komst áfram. „Ég sagði við pabba eftir þennan fyrsta hring að ég ætlaði að vera agressívari og hef engu að tapa. Það versta sem gat gerst var að ég næði ekki að spila minn leik og væri þá á leið heim en svo náði ég bara að spila rosalega vel. Þetta virkaði.“ Óliver einbeitturAðsend mynd Sigur með draumahöggi í bráðabana Eftir að hafa tryggt sér sæti í útsláttarkeppni mótsins lagði Óliver að velli hvern kylfinginn á fætur öðrum, meðal annars ríkjandi Evrópumeistara frá Frakklandi áður en hann hafði betur í úrslitaeinvíginu í bráðabana gegn Svíanum Ludwig Libera í 37 holu einvígi. Óliver las vel í aðstæður þegar að mest á reyndi. „Ég reyndi bara að vera í núinu, ná að klára þetta og ég vissi að ég væri með meira sjálfstraust en hann því hann var farinn að vera í smá rugli af teig, týndi meðal annars bolta á sautjándu holu. Ég vissi að með því að slá gott högg af teig myndi ég setja pressu á hann. Ég sló á besta stað til þess að ná á pinna í öðru höggi.“ Draumahögg? „Já innáhöggið er líklega besta högg sem ég hef slegið á ævinni undir pressu.“ View this post on Instagram A post shared by Golfsamband Íslands (@gsigolf) Stoppar ekki lengi heima Með sigrinum má búast við því að Óliver taki risastökk á nýjum heimslista áhugakylfinga sem verður opinberaður á morgun kemur. Þá tryggir hann Óliver inn á Opna breska áhugamannamótið sem og sæti á lokaúrtökumótinu fyrir Opna breska meistaramótið. „Það tók mig smá tíma að átta mig á því að ég hefði afrekað þetta. Ég varð rosalega glaður eftir að hafa unnið þetta og gat fagnað með mömmu og pabba. Það er ógleymanlegt.“ Óliver Elí er kylfingur í Golfklúbbnum Keili og hefur þar geta þróað sinn leik í frábærum aðstæðumVísir/Bjarni Íslendingurinn ungi hlaut svo hinn mikla heiður að vera valinn í úrvalslið Evrópu og má vart vera að því að taka upp úr ferðatöskunni. Tækifæri bjóðast eftir svo glæstan sigur. „Þetta gefur mér tækifæri á fullt af mótum erlendis. Ég fer á morgun (í dag) á Jacques Léglise Trophy, spila með úrvalsliði Evrópu á móti úrvalsliði Bretlandseyja. Þetta er búið að breyta mjög miklu hjá mér, þessi sigur. Hann mun örugglega gefa mér mjög mikið af tækifærum sem ég hafði ekki áður fyrr.“ Þjálfarar úr háskólagolfinu haft samband Hefurðu fundið fyrir meiri athygli eftir að sigurinn var í höfn? „Já algjörlega. Það hafa til að mynda þjálfarar í háskólagolfinu sent á mig skilaboð. Þjálfarar sem ég hafði ekki talað við áður úr stórum háskólum.“ Óliver ætlar sér langt í íþrótinni. „Eftir menntaskólann er stefnan sett á háskólagolfið og svo reyna við atvinnumennsku eftir það. En akkúrat núna ætla ég bara að lifa lífinu.“
Golf Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira