„Fann í líkama, hjarta og sál að nú væri komið gott“ Aron Guðmundsson skrifar 19. ágúst 2026 09:03 Jón Daði Böðvarsson hefur lagt knattspyrnuskóna á hilluna. Farsæll ferill að baki. Vísir/Bjarni Jón Daði Böðvarsson hefur lagt knattspyrnuskóna á hilluna eftir farsælan feril í atvinnumennsku sem og með íslenska landsliðinu. Heimkoman í uppeldisfélagið fór ekki sem skyldi en Jón Daði er ánægður með að hafa tekið það skref. „
Fyrst og fremst fann maður þetta í líkama, hjarta og sál. Að nú væri komið gott,“ segir Jón Daði í viðtali við íþróttadeild Sýnar. . „Í fullkomnum heimi hefði maður reynt að klára tímabilið með Selfossi en ég er búinn að vera meiddur. Síendurtekin meiðsli. Það fyrst og fremst var mér bara ákveðin vakning um að nú væri komið gott. Þegar að maður er að reima skóna á dóttur sína og það er vont þegar maður fer niður á hné. Það var komið að þeim punkti að ég var ekki að ná að gefa af mér eins og ég hefði viljað gera. Maður er ekki alveg 100 prósent maður sjálfur. Ef ég er í síendurteknum meiðslum og ekki alveg heilshugar í þessu þá er ég að sjálfsögðu ekki að gera sjálfum mér neinn greiða og þá að sjálfsögðu ekki félaginu sjálfu. Mér fannst það því það rétta í stöðunni að segja þetta bara gott. Mér líður mjög vel með það.“ „Auðvitað er ég ekki fullkominn“ Jón Daði lauk ferlinum þar sem að hann hóf hann. Heima með uppeldisfélaginu á Selfossi. Heimkoma sem fékk ekki endalok eins og sjá má í ævintýrum því samstarfið fór ekki eins og vonast hafði verið eftir. Fyrr í sumar var sagt frá því að Jón Daði hafi verið rekinn heim af æfingu og nú er orðið ljóst að hann klárar ekki yfirstandandi tímabil. Síendurtekin meiðsli spila þar inn í sem og sjokk við heimkomu í íslenska boltann en allir skilja í góðu. Jón Daði gekk aftur í raðir uppeldisfélagsins í fyrra en heimkoman fór ekki sem skyldivísir / sigurjón „Jú ég var rekinn af æfingu og ég held að flest allir sem hafa spilað íþróttir eða fótbolta þess vegna vita að það er skap í þessu og ástríða. Eðlilega var maður tekinn til hliðar á æfingu, málin svo rædd og allt orðið gott næsta dag á eftir.“ Voru það mistök að snúa aftur heim? „Ég myndi ekki segja að það hafi verið mistök. Ég er mjög ánægður með að hafa tekið þetta skref. Auðvitað hefði maður viljað að þetta hefði endað betur. Maður ímyndar sér þetta alltaf þannig að maður muni labba í sólsetrið og að allt sé voða rómantískt og fínt. Engu að síður tel ég mig hafa gefið mjög vel af mér á meðan að ég var þarna. Auðvitað er ég ekki fullkominn. Maður er kröfuharður. Á köflum getur maður líka verið „naive“. Að ég sé að koma beint úr C-deild á Englandi í fyrstu deildina á Íslandi og síðan í 2.deildina á mjög stuttum tíma. Ég held það sé mjög eðlilegt að það sé krefjandi að venjast ákveðnum aðstæðum og standard. En það er ekkert út á félagið að setja. Ég held það sé bara á íslenskum mælikvarða yfir höfuð. Það er það sem við hér á Íslandi erum að reyna gera. Reyna betrumbæta umgjörð og gæðastig og annað. Það kemur bara hægt og rólega. Það voru aðallega þær andstæður sem var erfitt að eiga við. Ég viðurkenni það alveg fúslega. Sambland af því og minni líkamlegu og andlegu heilsu er það sem gerir útslagið á endanum. Sem er allt í lagi. Ég er bara mjög ánægður með alla heilu myndina í þessu. Sjálfan mig og hvað maður hefur afrekað. Það er það sem skiptir mestu máli í þessu.“ Mun sakna þess að spila á Laugardalsvelli Farsæll ferill runninn sitt skeið. Lengst af á Englandi með félagsliðum og svo sögulegur árangur með íslenska landsliðinu, tvö stórmót, þau einu til þessa. Landsliðsferlinn er sá sem ég muni sakna hvað mest. Að vera á Laugardalsvelli þegar að allt gekk eins og það gekk. Í þessi ár sem þessi ákveðna velgengni var til staðar. Þá stendur það mér nærri að hafa veitt yngri kynslóðinni innblástur, leikmenn sem eru kannski að stíga sín fyrstu skref í atvinnumennskunni í dag eða í meistaraflokki á Íslandi. Það er það sem mér finnst mikilvægast í þessu. Jón Daði Böðvarsson fagnar marki sínu í 2-1 sigrinum á Austurríki á EM 2016. Einn af eftirminnilegustu leikjunum sem íslenska landsliðið hefur spilað fyrr og síðar. VÍSIR/VILHELM Mörk og sigrar fara mikið til bara í einhvern einn graut. Þegar að maður lítur til baka þá er það sem stendur mest upp úr bara tilfinningalega hliðin á þessu. Hvernig manni leið í ákveðnum mómentum. Það er að sjálfsögðu EM. Og ekki bara EM heldur landsliðið í heild sinni. Það gat ekki gerst betur fyrir mig og minn feril. Maður er stoltur af öllu þessu tímabili og komist í gegnum þennan fótboltaferil sem er endalaust mótlæti. Fótbolti er bara 70 prósent mótlæti og hin 30 prósentin gera þetta þess virði.“
Enski boltinn Íslenski boltinn UMF Selfoss Landslið karla í fótbolta Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Sjá meira