Bjartviðri í flestum landshlutum Atli Ísleifsson skrifar 19. ágúst 2026 06:52 Hiti verður á bilinu ellefu til sautján stig. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir að vindáttin verði vestlæg eða breytileg í dag og að vindhraði verði yfirleitt fremur hægur.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði bjartviðri í flestum landshlutum en við sjávarsíðuna á vestanverðu landinu sé viðbúið að lágskýjabakki geri sig gildandi. Á stöku stað fyrir norðan gæti þokuloft sums staðar legið fram eftir degi en sólin ætti svo að hafa vinninginn yfir þokunni. Heilt yfir þokkalega milt eins og verið hefur. Fram kemur að hiti verði víða ellefu til sautján stig að deginum, en mun svalara í þokuloftinu. Á morgun verður svipað veður uppá teningunum en líklega verður útbreiðsla lágskýja eða þokulofts heldur meira áberandi, einkum þó við ströndina. Á föstudag er svo gert ráð fyrir að vindáttin verði suðvestlæg og eins og svo oft áður má þá búast við að úrkoma fylgi henni, ekki mikil en eykst líklega eftir því sem líður á helgina, enda von á lægðum. Fyrir norðan og austan verður því bæði þurrast og hlýjast. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Vestlæg eða breytileg átt, yfirleitt hæg og víða bjartviðri, en skýjað vestanlands, en úrkomulítið. Hiti yfirleitt 10 til 17 stig yfir daginn. Á föstudag: Suðvestlæg átt, 3-10 m/s og dálítil væta á vestanverðu landinu, en annars skýjað með köflum. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast fyrir austan. Á laugardag: Suðvestanátt og víða rigning vestantil, en annars skýjað og úrkomulítið. Hiti breytist lítið. Á sunnudag: Útlit fyrir sunnanátt með rigningu, en úrkomulítið norðaustan- og austanlands. Áfram hlýtt í veðri. Á mánudag og þriðjudag: Útlit fyrir breytilega átt, en sunnan kalda austast. Rigning eða skúrir í flestum landshlutum, en áfram úrkomulítið norðaustantil. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu Innlent Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Erlent Fleiri fréttir Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Sjá meira