Algjört risastökk Ólivers á heimslistanum Sindri Sverrisson skrifar 19. ágúst 2026 12:30 Óliver Elí fékk gott faðmlag eftir sigurinn magnaða í Skotlandi um helgina. Getty/Oisin Keniry Eftir sigurinn magnaða á Opna breska áhugamannamótinu í golfi pilta, besta árangur íslensks kylfings í flokki 18 ára og yngri, flaug Óliver Elí Björnsson upp heimslista áhugakylfinga í dag.
Nýr listi var birtur í dag og þar fór Óliver upp um hvorki fleiri né færri en 407 sæti. Þessi bráðefnilegi kylfingur úr Golfklúbbnum Keili er því núna, þrátt fyrir að vera enn 16 ára gamall, kominn upp í sæti 1.243 á heimslista áhugakylfinga. Gunnlaugur Árni Sveinsson er áfram efstur Íslendinga á listanum en fellur þó niður um átta sæti og er núna í 20. sæti. Gunnlaugur Árni hefur náð langhæst Íslendinga í sögu listans eða 8. sæti. Fyrir ofan Óliver á heimslistanum eru einnig fjórir aðrir Íslendingar, þeir Aron Emil Gunnarsson í sæti 527, Böðvar Bragi Pálsson í sæti 824, Veigar Heiðarsson í sæti 837 og Kristján Karl Guðjónsson í sæti 993. Óliver hefur verið að gera frábæra hluti í sumar og eftir sigurinn magnaða í Skotlandi um helgina hafa ýmsar dyr opnast. Þar á meðal dyrnar inn á Jacques Léglise Trophy sem fram fer á Írlandi á föstudag og laugardag. Þar verður Óliver í úrvalsliði Evrópu, skipuðu kylfingum 18 ára og yngri, sem mætir úrvalsliði Bretlands og Írlands. Um árlegt mót er að ræða sem er eitt það stærsta í unglingagolfinu í Evrópu.
Golf Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira