Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar 19. ágúst 2026 16:16 Þegar rætt er um Evrópusambandið verður umræðan oft víðfeðm og almenn. En í þeim málaflokkum sem ég ber ábyrgð á er Evrópusamstarfið mjög áþreifanlegt. Fólk sem starfar við rannsóknir, nýsköpun, háskóla og í menningu reiðir sig í vaxandi mæli á framlög sem koma úr samstarfsáætlunum ESB. Hér eru gríðarlegir hagsmunir undir fyrir þau svið sem vaxa hraðast í íslensku samfélagi. Fjárfesting í atvinnulífi, menningu og samfélögum Í gegnum EES-samninginn tekur Ísland þátt í ýmsum áætlunum ESB, að hluta eða öllu leyti, þar á meðal Horizon Europe, Erasmus+, InvestEU og Creative Europe. Þær opna íslenskum vísindamönnum, fyrirtækjum, nemendum, listafólki og menningarstofnunum dyr að samstarfi, þekkingu og fjármögnun. Fyrir aðganginn greiðir íslenska ríkið framlög – um 34 milljarða fyrir sjö ára tímabil, 2021-2027. Góðu fréttirnar eru að á síðustu árum hafa framlögin skilað verulegum ávinningi til baka. Samkvæmt útreikningum sérfræðinga í ráðuneytinu mínu skilar hver króna sem varið er til samstarfsáætlana Evrópusambandsins, 1,7 krónu til baka til íslenskra verkefna og fyrirtækja. Það er dágóð ávöxtun og raunveruleg fjárfesting í atvinnulífi, samfélagi og menningu, fyrir utan ávinninginn af verkefnunum sjálfum í nýrri þekkingu, bættri tækni, innviðum, mannauði og viðskiptatengslum. Það er því afar mikilvægt að standa vörð um og tryggja áfram þátttöku Íslendinga í áætlunum ESB.Það verður best gert með fullri aðild, ef íslenska þjóðin velur þá leið. Sæti við borðið Evrópusamstarfið snýst um að hafa áhrif á reglur og stefnumótun, t.d. um nýsköpun, líftækni, tengingar fyrir dreifðar byggðir og í ört vaxandi málaflokki gervigreindar. Nú er sérstaklega mikilvægt að horfa fram á veginn. Framundan er nýtt tímabil sem verið er að semja um. Þar má gera ráð fyrir að framlög í næstu kynslóð samstarfsáætlana muni hækka og það þarf að hafa meira fyrir aðkomu EES ríkjanna að ákvörðunum og þátttöku í nýjum fjármögnunarleiðum. Framkvæmdastjórn ESB hefur lagt til 175 milljarða evra í vísindasamstarf Horizon Europe. Háskólaáætlunin Erasmus+ á jafnframt að stækka verulega og menningarmál verða hluti af nýju AgoraEU-kerfi ásamt jafnréttismálum. Eins fer af stað nýr samkeppnishæfnisjóður ESB árið 2028 upp á 234 milljarða evra. Fyrir Ísland skiptir miklu að tryggja sem bestan aðgang og fyrirsjáanleika í þessu nýja kerfi, sækja framlög úr nýjum áætlunum, og vinna að því að þau skili sér í sem mestum ávinningi fyrir íslenskt háskóla-, nýsköpunar- og menningarlíf. Hér er að mínu mati ótvíræðir kostir við að fá sæti við borðið. Lýðræðisleg leið Samhliða því þarf að halda áfram að gæta hagsmuna Íslands innan EES af fullum krafti. Ef niðurstaðan verður nei heldur núverandi samstarf okkar áfram á grundvelli EES-samningsins. Það er mikilvægt að segja það skýrt. Við munum þurfa að verja auknum fjármunum til hagsmunagæslu og fyrir áframhaldandi aðgengi Íslands. Undan því munum við ekki skorast. Það er rétt að árétta að þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst snýst ekki um að Ísland gangi þá í Evrópusambandið. Hún snýst um hvort halda eigi áfram aðildarviðræðum og sjá hvaða samningur stendur Íslandi til boða. Ég mun kjósa já. Afstaða mín byggist því á því að afla frekari upplýsinga og sjá hvaða niðurstaða fæst úr viðræðum á þessum sviðum og öðrum. Að þeim loknum á þjóðin að taka afstöðu til þess samnings sem raunverulega liggur fyrir. Það er lýðræðisleg og skýr leið til að taka ákvörðun um framtíðarsamband Íslands og Evrópusambandsins. Höfundur er ráðherra menningar, nýköpunar og háskólamála. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Logi Einarsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Skoðun Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar