Kylfingarnir „kjöt á hlaðborði“ í Kanada Sindri Sverrisson skrifar 21. ágúst 2026 15:16 Lydia Ko reynir að sýna sem minnst af holdi til að sleppa við moskítóflugurnar í Kanada. Samsett/Getty Moskítóflugur herja á bestu kvenkylfinga heims í Edmonton í Kanada, á CPKCmótinu á LPGA-mótaröðinni í golfi.
Sérfræðingar telja að fimmtán sinnum fleiri moskítóflugur séu í Edmonton í sumar en á sama tíma í fyrra og hafa menn ekki séð annað eins síðan á níunda áratug síðustu aldar. Sögulega mikil rigning fyrr í sumar mun hafa haft þessi áhrif. „Ég tók með mér þrjár ólíkar tegundir af moskítóvörn en ég er enn að reyna að finna eitthvað sem virkar af alvöru,“ sagði nýsjálenska golfstjarnan Lydia Ko við Golf.com. „Ég ákvað að til að lifa þessa viku af þá yrði ég klædd í langerma boli, síðbuxur og háa sokka. Ég ætla ekki að bera mig neitt meira en ég þarf. Ég er þekkt fyrir að vera í ermalausum bolum en það þýðir ekkert að vera með bera handleggi í þessari viku. Ég reyni bara að verja sjálfa mig og vera ekki eins og kjöt á hlaðborði fyrir moskítóflugurnar,“ sagði Ko sem lék á pari á fyrsta hring í gær. Fleiri kylfingar tóku í sama streng. „Þetta er ansi slæmt. Handleggirnir eru frekar rauðir núna,“ sagði Anna Huang eftir hringinn í gær. „Moskítóflugurnar eru mjög hrifnar af mér. Þetta er svolítið mikið sjokk fyrir kerfið,“ sagði Nelly Korda. „Ég þarf klárlega að vera í jakka þarna úti því flugurnar eru ekki skemmtilegar,“ sagði Kiara Romero. Hinar japönsku Miyu Yamashita og Nasa Hataoka voru efstar eftir fyrsta hring, á -8 og -7 höggum, en Romero í þriðja sæti á -6 höggum, í jafnri toppbaráttu. Kylfingarnir eru sumir byrjaðir að spila annan hring og hefst bein útsending á Sýn Sport 4 klukkan 22 í kvöld, líkt og á morgun og á sunnudag.
Golf Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira