Formúla 1

Norris náði ráspólnum aftur

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Norris er ríkjandi heimsmeistari en hefur dregist aftur úr baráttunni í ár, nær hann að munda endurkomu að titlinum?
Norris er ríkjandi heimsmeistari en hefur dregist aftur úr baráttunni í ár, nær hann að munda endurkomu að titlinum? Jordan McKean/Getty Images

Ríkjandi meistarinn Lando Norris hjá McLaren er ekki tilbúinn að játa sig sigraðan í baráttunni um heimsmeistaratitilinn og tryggði sér fremstu stöðu í Formúlu 1 kappakstrinum sem fer fram í Hollandi á morgun.

Norris náði líka ráspólnum í síðustu keppni fyrir sumarfrí og átti eftir að standa uppi sem sigurvegari í þeirri keppni. Norris kom síðan af krafti úr fríinu og keyrði hraðast allra í tímatökum dagsins í Hollandi.

Allt leit út fyrir að Kimi Antonelli og George Russell, ökumenn Mercedes, myndu ræsa fyrstir á morgun en Norris náði að bæta tímann þeirra undir blálokin.

McLaren-maðurinn mun því vera á ráspól á morgun, Antonelli og Russell næst á eftir, en liðsfélagi Norris, Oscar Piastri, verður fjórði. Ferrari-ökumennirnir Lewis Hamilton og Charles Leclerc fylgja þeim fast eftir. Hamilton náði að bæta tíma Leclerc í lokahring tímatökunnar.

Formúlu 1 kappaksturinn í Hollandi verður í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay klukkan 13:00 á morgun. 


Tengdar fréttir

Russell vann sprettinn í þriðja sinn

George Russell varð fyrstur í sprettkeppni Formúlu 1 kappakstursins í Hollandi. Hann var fremstur alla 24 hringina og kom í mark 1,3 sekúndu á undan Charles Leclerc.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×