Formúla 1

Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“

Aron Guðmundsson skrifar
Lewis Hamilton var ekki sáttur með sitt lið í gær
Lewis Hamilton var ekki sáttur með sitt lið í gær Vísir/Getty

Lewis Hamilton, ökuþór Ferrari, var pirraður út í lið sitt þegar að hollenski kapp­aksturinn fór fram í gær.

Hamilton endaði í fjórða sæti keppninnar, og var innan við sekúndu frá þriðja sætinu en tókst ekki að komast fram úr fyrr­verandi liðs­félaga sínum Geor­ge Rus­sell.

Pirringur Hamilton sneri að því að hann sá mögu­leika á sæti á verð­launa­palli en þurfti að verja drjúgum tíma fyrir aftan Charles Leclerc, liðs­félaga sinn hjá Ferrari eftir að hafa farið inn á þjónustu­svæði og fengið undir bíl sinn ferskari dekkja­gang.

„Ég er hraðari en Leclerc, mín dekk eru betri en hans,“ mátti heyra Hamilton segja við lið sitt á meðan á keppni stóð yfir og var þar með að reyna fá Ferrari til þess að fá Leclerc til að hleypa sér fram úr.

Ferrari tók það hins vegar ekki í mál.

„Við erum bara að tapa tíma,“ mátti heyra pirraðan Hamilton segja. „Þetta er frábær leið til þess að tapa tíma.“

Í sömu keppni mátti sjá Geor­ge Rus­sell hleypa liðs­félaga sínum Kimi Antonelli fram úr en Ítalinn þá á nýrri dekkja­gang.

Hamilton var spurður út í til­finningar sínar eftir keppni.

„Ég vil vinna. Ég vil vinna og er hér til þess að vinna,“ svaraði Hamilton. „Það er erfitt að horfa á þetta og sjá Mercedes á sama tíma hrókera sínum ökuþórum. Þeir fá skipun og hún er fram­kvæmd.“

Hamilton segist munu ræða þessi mál við lið sitt milli keppnis­helga.

Lando Norris, ökuþór McLaren vann keppni gær­dagsins og var á undan Mercedes ökuþórunum í öðru og þriðja sæti.

For­múla 1 heldur næst á heima­völl Ferrari, Monza á Ítalíu, þar sem keppt verður eftir hálfan mánuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×