Fótbolti

Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld

Aron Guðmundsson skrifar
Frá leik Víkings Reykjavíkur fyrr í sumar. 
Frá leik Víkings Reykjavíkur fyrr í sumar.  Diego/Vísir

Víkingur Reykjavík á fyrir höndum krefjandi verkefni gegn Borac Banja Luka á útivelli í Bosníu & Hersegóvínu í kvöld í seinni leik einvígis um laust sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu. Mikið er undir og háar fjárhæðir sem sigurlið einvígisins tryggir sér. 

Víkingur Reykjavík þekkir það vel að komast í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu og veit því sömuleiðis vel hvaða fjármunir fylgja því frá UEFA að komast á það stig í keppninni. 

Samkvæmt opinberu skjali UEFA mun hvert lið, af þeim 36 sem tryggja sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu, fá í sinn hlut í kringum 3.1 milljón evra, það jafngildir rúmum 447 milljónum íslenskra króna. Það væri lágmarkið sem Víkingar myndu tryggja sér með sæti í deildarkeppninni.

Víkingur er 3-1 undir í einvíginu eftir fyrri leikinn hér heima og mun því þurfa að taka á honum stóra sínum til þess að snúa einvíginu sér í vil. 

Með því að tryggja sér sæti í deildarkeppninni koma síðan frekari möguleikar á því að vinna sér inn meiri pening í gegnum deildina. 

Ákveðnar upphæðir fást fyrir sigur í leik í deildarkeppninni sem og jafntefli. Komist lið síðan áfram í útsláttarkeppni mótsins mæta til leiks árangurstengdir bónusar. 

Það er því mikið undir hjá Víkingum í kvöld og möguleiki á góðum tékka takist liðinu að vinna upp forystu bosníska liðsins. 

Leikur Borac Banja Luka og Víkings Reykjavíkur hefst klukkan 18.30 í kvöld og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×