Scheffler tryggði sér 1.200 milljónir og toppaði Tiger Sindri Sverrisson skrifar 30. ágúst 2026 22:17 Scottie Scheffler með verðlaunagripinn eftir sigurinn í dag. Getty/Kevin C. Cox Scottie Scheffler undirstrikaði stöðu sína sem besti kylfingur heims í dag þegar hann fagnaði sigri á lokamóti PGA-mótaraðarinnar. Sigri á mótinu fylgir hæsta verðlaunaféð á mótaröðinni eða 10 milljónir dollara, jafnvirði um 1,2 milljarða króna.
Norðmaðurinn Viktor Hovland var með forystuna fyrir lokahringinn í dag en missti hana frá sér og endaði í 2. sæti, eftir að hafa spilað lokahringinn á tveimur höggum yfir pari. Scheffler var hins vegar sjóðheitur, lék lokahringinn á -4 höggum og endaði samtals á -16 höggum, þremur höggum á undan Hovland. Scheffler sýndi mjög jafna frammistöðu í gegnum mótið á meðan að keppinautar hans náðu ekki sama stöðugleika. Það er við hæfi að Scheffler skyldi fagna sigri í úrslitakeppninni eftir að hafa verið með mikla forystu á stigalistanum áður en hún hófst. Hann hefur nú unnið FedEx-bikarinn tvisvar á ferlinum, eins og Tiger Woods gerði, og aðeins Rory McIlroy hefur unnið oftar eða þrisvar sinnum. Á ferlinum hefur Scheffler núna unnið samtals 130 milljónir dollara, sem samsvarar um 15,8 milljörðum króna, í verðlaun á PGA-mótaröðinni. Hann komst með sigrinum í dag upp fyrir Tiger Woods sem hafði verið efstur á listanum í 25 ár. Woods safnaði 120 milljónum dollara.
Golf Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira