Daníel Tristan sáttur eftir að samkeppnin fór til Noregs Sindri Sverrisson skrifar 7. september 2026 12:17 Daníel Tristan Guðjohnsen vonast eftir fleiri mínútum nú þegar helsti framherji Malmö í sumar er farinn til Noregs. Getty/Michael Campanella Ekkert varð af því að landsliðsframherjinn Daníel Tristan Guðjohnsen færi frá Malmö í síðasta mánuði eins og útlit var fyrir. Hann kveðst þó sáttur við sína stöðu núna.
Daníel var einn af markahæstu mönnum Malmö í fyrra og skoraði þá fimm mörk í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Í ár hefur hann aðeins fengið einn deildarleik í byrjunarliði, og tíu leiki sem varamaður, eftir að hafa orðið undir í samkeppni við norska framherjann Erik Botheim. Ekki bætti svo úr skák þegar Malmö fékk framherjann Diego García frá Leganés á Spáni í ágúst og var Daníel sagður á leið að láni til þýska félagsins Arminia Bielefeld, og hafði mikinn áhuga á því. Hann beið í óvissu þar til að félagaskiptaglugginn lokaðist í síðustu viku en á endanum var það Botheim sem var seldur, til norsku meistaranna í Viking, og þar með ætti að opnast tækifæri fyrir Daníel til að sýna sig og sanna. „Það er ljóst að það hefur mikið gengið á. Maður vissi ekki hvað myndi gerast og tók bara einn dag í einu. Maður einbeitir sér bara að því liði sem maður er í,“ sagði Daníel við Fotbollskanalen í Svíþjóð. Daníel virðist hafa staðið til boða að yfirgefa Malmö á lokadegi félagaskiptagluggans: „Já, það má segja það. En ég er ekki að hugsa um það núna. Ég verð hérna og einbeiti mér að því, og geri mitt besta á hverjum degi. Fyrir nokkrum vikum leit þetta vel út [með Bielefeld] en núna höfum við selt Erik svo við Diego erum bara eftir. Það gefur mér færi á fleiri mínútum. Mér líður vel hérna núna,“ sagði Daníel. Þeir Garcia berjast um stöðu í byrjunarliðinu en ná líka vel saman utan vallar. Daníel ólst upp á Spáni þar sem Eiður Smári pabbi hans lék með Barcelona. „Við [Garcia] tölum mikið saman á spænsku og höfum um margt að ræða sem tengist Madrid,“ sagði Daníel sem var í akademíu Real Madrid á árunum 2019-2022. Næsti leikur Malmö er í dag þegar liðið tekur á móti AIK í leik tveggja stórliða sem nú sitja í 7. og 6. sæti, þegar tíu umferðir eru eftir.
Sænski boltinn Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Fleiri fréttir Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Sjá meira