FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Valur Páll Eiríksson skrifar 11. september 2026 20:01 Gianni Infantino er forseti FIFA. Tveir forsetar landssambanda innan alþjóðasambandsins voru í dag dæmdir í lífstíðarbann. vísir/Getty Dómstólar FIFA dæmdu tvo fyrrverandi forseta knattspyrnusambanda í lífstíðarbann frá íþróttinni í dag. Annar þeirra var áfram í starfi þrátt fyrir að hafa tekið þátt í mútuhneyksli tengt FIFA árið 2011.
Vincent Cassell, sem leiddi knattspyrnuna í Montserrat um árabil, var í dag dæmdur fyrir að „misnota stöðu sína og kerfisbundna hagsmunaárekstra“ auk misnotkunar á fé frá FIFA, eftir því sem segir í yfirlýsingu frá FIFA í dag. Fyrrverandi forseti knattspyrnusambands Maldíveyja, Bassam Adeel Jaleel, var einnig bannsettur úr sportinu fyrir að „misnota Covid 19 sjóð FIFA fyrir eigin hag“. Á meðan faraldrinum stóð árið 2020 gaf FIFA út að sambandið myndi reiða fram einn og hálfan milljarð Bandaríkjadala í fjárhagsaðstoð, bæði í formi styrkja og lána. Fjölmiðlar í Maldívum greindi frá því fyrr á þessu árið að Jaleel hafi verið dæmdur í 23 ára fangelsi fyrir að draga að sér 1,2 milljónir Bandaríkjadala frá FIFA. Féð var ætlað knattspyrnufélögum á eyjunum en hann nýtti það sjálfur til kaupa á íbúðum og fleiru. Cassell og framkvæmdastjóri undir hans stjórn í Montserrat, Tandica Hughes, játuðu sök fyrir dómstólum í apríl eftir að hafa verið ákærð fyrir að skjóta undan skatti. Bæði Cassell og Hughes voru ákærðir af siðanefnd FIFA árið 2011 í tengslum við mútuþægni knattspyrnusambanda í Karíbahafinu sem sagðir voru hafa þegið 40 þúsund dali frá Mohamed Bin Hammam sem var þá í forsetaframboði gegn Sepp Blatter. Cassell og Hughes héldu hins vegar áfram að reka knattspyrnusamband Montserrat sem fær um tvær milljónir dala árlega frá FIFA. Frá því að þeir játuðu sök fyrir dómstólum í apríl hefur neyðarstjórn á vegum FIFA annast rekstur sambandsins. Cassell var sektaður um eina milljón svissneskra franka og dæmdur í lífstíðarbann frá fótbolta. Það sama á við um Jaleel frá Maldívum, hann fékk sömu sekt og einnig lífstíðarbann. Hughes var dæmdur í 15 ára bann og sektaður um 150 þúsund svissneska franka. Mohamed Ageel, fyrrum fjármálastjóri í Maldívum, fékk tíu ára bann og sektaður um 100 þúsund franka.
FIFA Maldíveyjar Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Íslenski boltinn Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Enski boltinn Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Enski boltinn „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fótbolti Fleiri fréttir Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Sjá meira