Aðeins 28 ára og stýrir Framúrskarandi fyrirtæki Starri Freyr Jónsson skrifar 18. september 2026 10:13 „Ég er með mjög gott starfsfólk í kringum mig og heiðurinn er miklu frekar þeirra en framkvæmdastjórans," segir Mikael R. L. Steingrímsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, en hann er einn af yngstu framkvæmdastjórunum á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki. Það er ekki sjálfgefið að reka öflugt fyrirtæki í litlu samfélagi úti á landi. Hjá fiskvinnslunni Drangi á Drangsnesi hefur þó tekist að byggja upp traustan rekstur og nú er fyrirtækið komið á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki sjötta árið í röð.
Á listanum, sem er enn í vinnslu og verður birtur 28. október, er jafnframt skemmtileg staðreynd sem tengist Drangi en Mikael R. L. Steingrímsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, er einn af yngstu framkvæmdastjórum á listanum en hann er einungis 28 ára gamall. „Það er auðvitað mjög skemmtileg staðreynd og ég er einstaklega stoltur af því,“ segir Mikael, sem tók við starfi framkvæmdastjóra á öðrum ársfjórðungi 2025 af Óskari Torfasyni. Óskar hafði þá stýrt fyrirtækinu frá stofnun þess um aldarmótin. Öflugur hópur eigenda og starfsfólks stendur að baka fiskvinnslunni Drangur á Drangsnesi. Mikael segir þó árangurinn fyrst og fremst vera liðsheildinni að þakka. „Ég er með mjög gott starfsfólk í kringum mig og heiðurinn er miklu frekar þeirra en framkvæmdastjórans. Mitt verkefni er að þróa fyrirtækið, efla það sem vel hefur verið gert og styrkja reksturinn áfram.“ Mikilvægt í litlu samfélagi Fyrir Drang snýst sæti á listanum ekki aðeins um viðurkenningu heldur einnig um staðfestingu á því að reksturinn standi á traustum grunni. Eigendur fyrirtækisins eru rúmlega 30 og eru heimamenn á svæðinu. „Fyrir stjórnendur, eigendur og starfsfólk er þetta mikil viðurkenning á því að margt hafi verið gert rétt og góðar ákvarðanir teknar. Fyrir viðskiptavini og samstarfsaðila er þetta líka ákveðinn gæðastimpill,“ segir Mikael. Hann segir mikilvægi þess að reksturinn sé traustur sérstaklega áþreifanlegt á stað eins og Drangsnesi. „Hér skiptir hver vinnustaður, hvert starf og hvert framtak miklu máli.“ Markmiðið sé þó ekki að komast á ákveðinn lista heldur að reka sjálfbært og arðbært fyrirtæki til lengri tíma. „Meginmarkmiðið er að vera í sjálfbærum og arðbærum rekstri og skapa heilsársstörf í okkar góða samfélagi á Drangsnesi. Að vera Framúrskarandi fyrirtæki er síðan staðfesting á því að við séum að fylgja stefnu okkar og ná markmiðum okkar.“ Vill vaxa og fjölga störfum Mikael horfir bjartsýnn til næstu ára þrátt fyrir að hann segi pólitíska óvissu í sjávarútvegi hafa aukist, ekki síst hjá minni fyrirtækjum. „Við stefnum að aukinni verðmætasköpun með því að veiða meira og vinna meira á komandi árum. Til þess þarf auknar fjárfestingar og fjölgun starfa.“ Slík uppbygging myndi að hans sögn bæði styrkja bæði Drang og samfélagið á Drangsnesi til framtíðar. Sjálfur tekur Mikael því að vera einn yngsti framkvæmdastjórinn á listanum af hófsemi. „Ég tek þessu með mikilli auðmýkt og lít fyrst og fremst á þessa staðreynd sem hvatningu til að halda áfram á sömu braut.“ Þann 28. október ætlar hann að gera sér ferð í Hörpu í Reykjavík þegar heildarlistinn yfir Framúrskarandi fyrirtæki verður kynntur. „Ég mæti og hlakka til að taka þátt í viðburðinum.“
Framúrskarandi fyrirtæki 2026 Mest lesið Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Viðskipti erlent Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Atvinnulíf Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Viðskipti innlent Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Viðskipti innlent Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Viðskipti innlent Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Viðskipti innlent Aðeins 28 ára og stýrir Framúrskarandi fyrirtæki Framúrskarandi fyrirtæki „Það þarf að fagna því að vera Framúrskarandi fyrirtæki“ Framúrskarandi fyrirtæki Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Viðskipti innlent Yfir þúsund hafa fært flug vegna yfirvofandi verkfalls Viðskipti Fleiri fréttir „Það þarf að fagna því að vera Framúrskarandi fyrirtæki“ Eina vottunin sem sýnir hvaða fyrirtæki skara raunverulega fram úr Sjá meira