Handbolti

Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn

Andri Broddason skrifar
Ómar Ingi Magnússon átti stórleik fyrir Magdeburg í þýsku úrvalsdeildinni.
Ómar Ingi Magnússon átti stórleik fyrir Magdeburg í þýsku úrvalsdeildinni. Angelika Warmuth/picture alliance via Getty Images

Magdeburg vann mikilvægan sigur gegn Kiel í þýsku úrvaldeild karla í handbolta í kvöld. Ómar Ingi Magnússon var markahæsti leikmaður Magdeburg í sigrinum en leikurinn endaði 32-26.

Í byrjun leiks voru það Íslendingarnir Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson sem komu Magdeburg í forystu leiksins. Þegar fimmtán mínútur voru búnar af leiknum var Magdeburg komið í fimm marka forystu og reyndist erfitt fyrir Kiel að vinna bilið upp.

Í hálfleik voru heimamenn í Magdeburg komnir í sex marka forystu og ljóst að Kiel þyrfti að spila betur í seinni hálfleik til þess að fá úrslit úr leiknum. Magdeburg náði þó að halda bilinu og endaði leikurinn í 32-26 sigri Magdeburg.

Ómar Ingi var markahæsti leikmaður Magdeburg en hann skoraði ellefu mörk. Gísli Þorgeir var næstmarkahæstur í liðinu og endaði hann með fimm mörk ásamt því að gefa sex stoðsendingar.

Með sigrinum er Magdeburg komið á topp þýsku úrvalsdeildarinnar og hoppar upp fyrir mótherja sína í Kiel sem detta úr öðru sætinu í þriðja sæti deildarinnar. Flensburg er í öðru sæti en er búið að spila leik færra en Magdeburg og getur því komist aftur upp fyrir Magdeburg með sigri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×