Fótbolti

Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps

Sindri Sverrisson skrifar
Glódís Perla Viggósdóttir heldur áfram ótrúlegri leikjahrinu með Bayern sem hefur ekki tapað deildarleik í 48 leikjum í röð.
Glódís Perla Viggósdóttir heldur áfram ótrúlegri leikjahrinu með Bayern sem hefur ekki tapað deildarleik í 48 leikjum í röð. Getty/Gualter Fatia

Fyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir fagnaði dýrmætum 1-0 sigri með Bayern München í dag gegn Frankfurt í toppslag efstu deildar Þýskalands í fótbolta.

Lið Frankfurt sló í vikunni FH út úr Evrópubikarnum, reyndar eftir hremmingar, og er það lið sem hefur haldið best í við Bayern á leiktíðinni en varð að þola sitt fyrsta tap í kvöld.

Klara Bühl skoraði sigurmarkið strax á 18. mínútu og þar með hefur Bayern unnið alla sex deildarleiki sína til þessa og eru þýsku meistararnir nú með fimm stiga forskot á Frankfurt. Wolfsburg er svo í 3. sæti með 12 stig og á leik til góða við Hamburg á morgun.

Bayern hefur ekki tapað í heilum 48 deildarleikjum í röð og stóðst prófið á útivelli gegn Frankfurt í kvöld.

„Við erum í skýjunum yfir hverjum einasta sigri. Þetta er frábær tilfinning og gefur okkur aukið sjálfstraust. Við erum ótrúlega stoltar af því að vinna alla þessa leiki í röð,“ sagði Bühl við ARD eftir sigurinn í dag.

Glódís kemur nú til móts við íslenska landsliðið sem á fyrir höndum ákaflega mikilvæga leiki við Króatíu í fyrri umferð umspils um sæti á HM í Brasilíu. Fyrri leikurinn við Króatíu er á útivelli næsta föstudag en sá seinni á Laugardalsvelli 13. október.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×