Íslenski boltinn

Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ó­trú­legum leik

Sindri Sverrisson skrifar
Blikar fögnuðu ákaft eftir ótrúlegan sigur sinn í dag.
Blikar fögnuðu ákaft eftir ótrúlegan sigur sinn í dag. Sýn Sport

Mörkin úr ótrúlegri endurkomu Breiðabliks gegn Þrótti og úr 5-0 stórsigri FH gegn ÍBV má nú sjá á Vísi.

Titilbaráttan í Bestu deild kvenna í fótbolta hélt áfram í dag og um tíma leit allt út fyrir að FH væri á leið í toppsætið.

Breiðablik náði hins vegar að vinna Þrótt 5-4, eftir að hafa lent 4-1 undir, og skoraði Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir þrennu, þar á meðal sigurmarkið í lokin.

Í Kaplakrika skoraði Nia Christopher enn fleiri mörk eða fernu, í 5-0 sigri gegn ÍBV. Þar með er FH enn þremur stigum á eftir Breiðabliki nú þegar landsleikjahlé tekur við en eftir það eru aðeins tvær umferðir eftir af deildinni. Breiðablik tekur á móti FH í lokaumferðinni.


Tengdar fréttir

FH - ÍBV 5-0 | Stór­sigur FH sem lagaði markatöluna

FH vann öruggan 5-0 sigur á ÍBV þegar liðin mættust í Kaplakrika í Bestu deild kvenna í dag. FH er þó áfram þremur stigum á eftir Breiðabliki í toppbaráttunni en tókst að laga markatölu sína með sigrinum stóra í dag.

„Þetta er bara víti og rautt spjald“

Jón Ólafur Daníelsson þjálfari ÍBV í Bestu deild kvenna var afar ósáttur með að hans lið hafi ekki fengið vítaspyrnu í tapi gegn FH í Kaplakrika í dag. Sagði hann dómarana hafa tekið margar hörmulegar ákvarðanir en hann fékk að lokum rautt spjald vegna mótmæla í 5-0 tapi Eyjakvenna.

„Við erum alltaf að fara að taka þetta“

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir var hetja Breiðabliks þegar liðið vann ótrúlegan 5-4 sigur á Þrótti í Kópavogi. Hrafnhildur skoraði þrennu og sigurmarkið á 90. mínútu eftir að Blikar höfðu lent 4-1 undir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×