Fótbolti

Allt á suðu­punkti: Saka Ís­raela um að hrækja á að­stoðar­mann Heimis

Sindri Sverrisson skrifar
Heimir Hallgrímsson var stoltur af sínum mönnum að hafa ekki látið plata sig út í einhverja vitleysu.
Heimir Hallgrímsson var stoltur af sínum mönnum að hafa ekki látið plata sig út í einhverja vitleysu. Samsett/Getty

Minnstu mátti muna að upp úr syði í hálfleik leiks Írlands og Ísraels í Serbíu í kvöld, í Þjóðadeildinni í fótbolta. Eftir leik biðlaði Heimir Hallgrímsson til UEFA um að koma í veg fyrir að þjóðirnar mættust aftur í framtíðinni.

Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en þegar liðin gengu til búningsklefa í hálfleik, þegar Írar voru 1-0 yfir, var allt á suðupunkti samkvæmt írskum miðlum.

Blaðamenn Irish Times og Irish Independent segja að Damien Doyle, einn aðstoðarmanna Heimis, hafi sakað leikmann Ísraels um að hrækja á hann. Þessu hafi serbneskir öryggisverðir orðið vitni að.

Spænski dómarinn Juan Martínez Munuera mun svo hafa skorist í leikinn og hvatt báða hópana til að sýna stillingu og hafa vit á að koma sér inn í búningsklefa.

Heimir var bersýnilega feginn í viðtali eftir leik yfir því að nú væru leikirnir við Ísrael loksins að baki.

„Það hafa komið upp mörg atvik sem hefðu getað stigmagnast. Við vorum bara nógu snjallir til að stöðva þau áður en þau gengu of langt.

Ég fann að það var ætlunin – að reyna að espa okkur og fá okkur til að gera eitthvað heimskulegt.

Ég hrósa leikmönnunum mikið, þeir höfðu stjórn á tilfinningum sínum,“ sagði Heimir við RTE.

Ekki mörg lönd sem styðja Palestínu jafn mikið

Aðspurður hvort honum fyndist að Írland og Ísrael ættu að geta mæst í komandi keppnum svaraði Eyjamaðurinn með skýrum hætti:

„Nei, það ættu þau ekki að gera. Það er ekki okkar að ákveða það, það er UEFA sem ákveður það.

Það er augljóslega mikill stuðningur við Palestínu á Írlandi. Það eru ekki mörg lönd sem styðja Palestínu jafn mikið og Írland gerir.

Ég myndi ekki óska neinu landsliði að ganga í gegnum það sem við höfum gengið í gegnum þessar tvær vikur.

Kannski þarf UEFA að grípa inn í og gera eitthvað,“ sagði Heimir.

Úrslit kvöldsins þýða að Austurríki er efst í riðlinum með átta stig, Írland og Kósovó eru með fimm stig hvort en Ísrael neðst með tvö stig. Eini sigur Íra til þessa var 3-0 sigurinn gegn Ísrael í Ungverjalandi fyrir viku.

Heimir kvaðst eftir leik sáttur með stigasöfnunina og feginn að þurfa ekki lengur að hugsa um leikina við Ísrael. Í nóvember bíða aðeins leikir við Austurríki og Kósovó.

„Mér finnst við vera betri en Ísrael, en við sýndum það ekki í seinni hálfleik, ég veit ekki af hverju,“ sagði Heimir í viðtali strax eftir leik.

„Mér fannst seinni hálfleikurinn bara ekki vera góður fótboltaleikur af hálfu beggja liða. Sennilega þreyta, bæði andleg og líkamleg, eins og ég hef sagt áður.

Þetta var erfið landsliðsferð, jafnvel án allra umræðna og fíaskósins. Við erum núna búnir að spila í fjórum löndum, fjögur millilandaflug, allir leikirnir og allt sem hefur gerst.

Ég held að við getum verið ánægðir með stigin sem við höfum. Ég er aðallega ánægður með að þessu sé lokið og að við getum einbeitt okkur að næsta mánuði þegar við spilum tvo leiki og getum enn unnið riðilinn.

Ég hefði þegið það fyrir þessa landsliðstörn,“ sagði Heimir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×