Fótbolti

Arnar situr fyrir svörum í Tallinn

Valur Páll Eiríksson skrifar
Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, situr fyrir svörum.
Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, situr fyrir svörum. Vísir/Anton Brink

Arnar Gunnlaugsson og Guðlaugur Victor Pálsson sitja fyrir svörum á blaðamannafundi á Lilleküla-vellinum í Tallinn þar sem Ísland mætir Eistlandi í Þjóðadeildinni annað kvöld. Fundurinn hefst klukkan 14:15.

Ísland sækist eftir því að vinna þriðja leikinn í röð eftir tvo 3-0 sigra á Lúxemborg og Búlgaríu. Toppsæti riðilsins er undir þar sem Ísland situr með sjö stig en Eistland er með fimm stig.

Liðin gerðu 1-1 jafntefli á Laugardalsvelli fyrir rúmri viku og strákarnir okkar stefna að því að bæta upp fyrir það og vinna leik morgundagsins.

Blaðamannafundinn má sjá í spilaranum og hefst klukkan 14:15.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×