Skoðun

Í hverju felst virðing fyrir lífinu?

Ingrid Kuhlman skrifar

Í umræðunni um dánaraðstoð er „virðing fyrir lífinu“ eitt algengasta en jafnframt óljósasta hugtakið. Því er beitt bæði til að rökstyðja skyldu samfélagsins til að vernda mannlegt líf og til að leggja áherslu á sjálfræði einstaklingsins við lok lífs.

Ef hugtakið á að hafa raunverulega merkingu í þessari umræðu þurfum við því að spyrja: Hvað felst í virðingu? Hver fær að skilgreina hana? Og beinist virðingin fyrst og fremst að lífinu sjálfu eða manneskjunni sem lifir því?

Virðing sem vernd eða viðurkenning

Sumir skilja virðingu fyrir lífi fyrst og fremst sem skyldu til að vernda mannlegt líf og telja að ekki megi af ásettu ráði binda enda á það. Sú afstaða getur byggst á trúarlegum eða veraldlegum siðfræðilegum hugmyndum um að mannlegt líf hafi sérstakt og ófrávíkjanlegt gildi.

Aðrir leggja meiri áherslu á mannlega reisn og sjálfræði. Samkvæmt þeirri sýn felst virðing fyrir lífinu einnig í því að virða manneskjuna sem lifir því, gildi hennar, vilja og mörk.

Þessi ólíki skilningur verður sérstaklega áberandi við lok lífs. Þegar einstaklingur glímir við ólæknandi sjúkdóm, miklar þjáningar eða verulega skerðingu á því sem hann sjálfur telur gefa lífinu gildi vakna erfiðar spurningar. Felst virðing fyrir lífinu ávallt í því að lengja það eins og kostur er? Eða getur virðing einnig falist í því að taka alvarlega afstöðu manneskjunnar sjálfrar til eigin lífsloka?

Virðing fyrir lífinu er meira en lífslengd

Í heilbrigðisþjónustu er virðing fyrir mannslífi einn af hornsteinum fagmennsku. En það þýðir ekki að markmið læknisfræðinnar sé alltaf að lengja líf eins mikið og tæknilega er mögulegt.

Áhersla er einnig lögð á lífsgæði, sjálfræði, upplýst samþykki og vilja sjúklings. Sjúklingur getur til dæmis hafnað meðferð, jafnvel þótt sú ákvörðun geti stytt líf hans. Einnig getur komið að því að meðferð sé stöðvuð þegar hún skilar ekki lengur þeim ávinningi sem stefnt var að.

Slíkar ákvarðanir eru ekki það sama og dánaraðstoð. Þær sýna hins vegar að virðing fyrir lífi er þegar í dag túlkuð í samhengi við fleiri gildi en lífslengd eina og sér.

Þar liggur ein af grundvallarspurningunum í umræðunni um dánaraðstoð: Getur virðing fyrir lífinu samrýmst því að virða sjálfræði manneskju sem, að uppfylltum ströngum skilyrðum, óskar eftir aðstoð við að binda enda á eigið líf vegna þjáninga sem hún telur óbærilegar?

Hver skilgreinir virðinguna?

Þegar stjórnmálamenn, trúarleiðtogar, heilbrigðisstarfsfólk eða aðrir vísa til „virðingar fyrir lífinu“ fylgir ekki alltaf skýring á því hvað felst í hugtakinu.

Fyrir suma markar það siðferðileg mörk sem aldrei megi fara yfir. Fyrir aðra snýst virðingin ekki aðeins um að varðveita líffræðilegt líf heldur einnig um reisn, samkennd, sjálfræði og hvernig komið er fram við manneskju við lok lífs hennar.

Þegar sama hugtak er notað til stuðnings ólíkum og jafnvel gagnstæðum niðurstöðum er mikilvægt að staldra við merkingu þess.

Hver á að skilgreina hvað virðing fyrir lífinu felur í sér? Trú- og lífsskoðunarfélög? Heilbrigðisstéttir? Löggjafinn? Samfélagið í heild? Eða þarf rödd manneskjunnar sem sjálf stendur frammi fyrir dauðanum að vega þyngst?

Virðing fyrir lífinu verður vart aðskilin frá virðingu fyrir þeirri manneskju sem lifir því.

Virðing sem samræða

Að sýna virðingu við lok lífs krefst samræðu. Það felur í sér að hlusta á manneskjuna sem er að deyja, aðstandendur hennar og heilbrigðisstarfsfólk og viðurkenna að þar geta tekist á ólík siðferðileg gildi og sjónarmið.

Stundum felst virðing í því að beita öllum tiltækum úrræðum til að lengja líf. Stundum felst hún í líknandi meðferð, því að takmarka inngrip eða hætta meðferð sem ekki þjónar lengur markmiðum sjúklingsins.

Ágreiningurinn um dánaraðstoð snýst að hluta til um hvort, og þá við hvaða skilyrði, virðing fyrir vilja einstaklingsins eigi einnig að geta náð til ákvörðunar um hvernig og hvenær lífi hans lýkur.

Virðum lífið, allt til loka

Virðing fyrir lífi er meira en siðferðilegt slagorð. Hún birtist í því hvernig við hlustum, hvernig við tölum saman og hvernig við mætum fólki þegar það stendur frammi fyrir erfiðustu spurningum lífsins.

Við lok lífs reynir á getu okkar til að halda fleiri en einu gildi á lofti samtímis: vernd lífs, mannlega reisn, umhyggju, sjálfræði og ábyrgð gagnvart þeim sem eru viðkvæmir.

Kannski felst virðingin einmitt í því að taka öll þessi gildi alvarlega og gleyma aldrei manneskjunni sjálfri í umræðunni um lífið.

Höfundur er formaður Lífsvirðingar, sem berst fyrir lögleiðingu dánaraðstoðar á Íslandi.




Skoðun

Skoðun

Glassúrfólkið

Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar

Sjá meira


×