Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar 8. október 2026 13:46 Frú forseti, ágætu landsmenn og borgarstjórn. Það er vegið að lýðræðinu okkar. Meirihlutinn í borginni virðist ætla að veikja lýðræðið enn frekar. Nú vilja borgarfulltrúar meirihlutans fækka fulltrúum úr 23 í 15. Oddviti Viðreisnar birti grein á Vísi í morgun til að réttlæta þessa aðgerð, á sama tíma og Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins, hefur lagt fram frumvarp á Alþingi í fjórða sinn til að heimila einmitt þessa fækkun. Það er umhugsunarefni þegar fulltrúar þessara flokka snúa baki í bak til að auðvelda valdasamþjöppun. Þeir selja borgarbúum þá hugmynd að breytingin sé gerð í nafni hagræðingar og skilvirkni, en það er einfaldlega rangt. Að fækka borgarfulltrúum í Reykjavík svo hressilega er breyting sem mun hafa verulegar og mjög alvarlegar afleiðingar fyrir stjórnsýslu borgarinnar. Á bak við fögur fyrirheit um straumlínulagað kerfi leynist alvarleg hætta fyrir lýðræði, gagnsæi og heilbrigða stjórnhætti. Mesta áfallið lýtur að lýðræðislegri breidd og fjölbreytileika radda. Þegar sætum í borgarstjórn fækkar, hækkar þröskuldurinn sjálfkrafa sem þarf til að ná inn fulltrúa. Sögulega bitnar þetta harðast á vinstri, félagshyggju, og framtíðarflokkum þar sem fylgið er oft meira dreift, meðan stærri hægri flokkar styrkja stöðu sína. Þetta þýðir að minni flokkar, sem oft brenna fyrir afmörkuðum en gríðarlega mikilvægum málefnum á borð við umhverfis, og loftslagsmál, skipulags, og borgarþróun, Urbaisma, málefni innflytjenda, réttindi hinsegin fólks og réttindamál fatlaðs fólks og öryrkja, eiga á hættu að kaffærast. Borgarstjórn verður fyrir vikið einsleitari og mun síður spegla þann fjölbreytta raunveruleika sem íbúarnir búa við. Við þetta bætist hrein og klár valdasamþjöppun. Færri fulltrúar þýða að völdin færast á færri hendur og meirihlutinn þarf færri atkvæði til að keyra mál í gegn án víðtækrar samstöðu eða dýpri umræðu. Á sama tíma fækkar verkefnum borgarinnar ekki neitt. Þeir fimmtán fulltrúar sem eftir sitja þurfa að deila með sér fleiri nefndarsætum og ráðum. Það eykur álagið og leiðir óhjákvæmilega til þess að fólk hefur minni tíma til að kynna sér mál ofan í kjölin, sem veikir verulega nauðsynlegt eftirlitshlutverk kjörinna fulltrúa gagnvart hinu risavaxna embættismannakerfi. Þessi þróun er auk þess gróðrarstía fyrir aukinn klíkuskap og frændhygli. Þegar ákvarðanataka færist á færri hendur verður kerfið lokaðra og innri hringurinn þrengri. Í litlum hópi verður mun auðveldara fyrir sterka einstaklinga eða flokkseigendafélög að stýra línunni, þar sem tryggð við hópinn fer að skipta meira máli en málefnaleg og staðreyndarleg rök. Hagsmunapot verður sömuleiðis talsvert auðveldara, eins td þegar örfáir aðilar ráða yfir stórum ákvörðunum á borð við lóðaúthlutanir, útboð og ráðningar, aukast líkurnar á því að persónuleg tengsl, fjölskyldubönd, vinasambönd eða viðskiptahagsmunir vegi þyngra en faglegt mat. Það er jú einfaldlega mun auðveldara fyrir hagsmunaaðila að hafa áhrif á lítinn hóp en stóran og fjölbreyttan hóp fulltrúa. Að lokum mun þessi fækkun ýta undir svokallaða hreppapólitík, þar sem hagsmunir afmarkaðra hverfa eða hópa eru settir ofar heildarhagsmunum borgarinnar. Með færri fulltrúum er nánast öruggt að ákveðin hverfi innan borgarinnar, líkt og Kjalarnes, Grafarvogur eða Breiðholt, missi sína staðbundnu fulltrúa. Þeir fáu sem komast að munu upplifa ríka pressu á að verja hagsmuni síns eigin baklands þar sem þeir sækja mest fylgi. Í stað þess að horft sé á Reykjavík sem eina heild þar sem fjármunum er skipt af skynsemi, hættir pólitíkin til að breytast í skotgrafarhernað þar sem fulltrúar rífast um bitana fyrir sitt nánasta umhverfi til að tryggja endurkjör sitt. Í stuttu máli er verið að fórna lýðræðislegri breidd fyrir meinta skilvirkni. Afleiðingin verður sú að borgarstjórn einangrast frá grasrótinni, ákvarðanir verða teknar bak við lokaðar dyr fárra útvaldra og hagsmunir stóru flokkanna og vel tengdra einstaklinga verða settir í fyrirrúm á kostnað almennings. Það er frægt að orði kveðið að lýðræðið deyi í myrkri, og með því að fækka fulltrúum er verið að slökkva ljósin á mikilvægum stöðum í stjórnsýslu borgarinnar. Reykjavíkurborg getur þó ekki framkvæmt þetta ein þar sem fjöldi fulltrúa er bundinn í lög. Ég skora því á ríkisstjórnina og Alþingi að slá á léttúðarfull frumvörp og hafna þessum þrýstingi meirihlutans og Miðflokksins milliliðalaust verjum lýðræðið! Höfundur er Pírati. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðni Freyr Öfjörð Mest lesið Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar