Viðskipti innlent

Öll til­boð yfir kostnaðar­á­ætlun

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Fjörur tilboð bárust.
Fjörur tilboð bárust. Nýi Landspítalinn

Öll tilboð sem hafa borist í innanhússfrágang í nýju rannsóknarhúsi við Hringbraut sem er hluti af Nýja Landspítalanum eru yfir kostnaðaráætlun.

Um er að ræða nítján þúsund fermetra rannsóknarhús sem hefur þegar verið steypt upp. Ljúka á lokafrágangi á útveggjum og þaki hússins í þessari viku. 

Fjögur tilboð bárust í verkið og var Eykt ehf. með lægsta tilboðið upp á um það bil 10,3 milljarða króna. Þrátt fyrir að vera lægst var tilboðið 113,6 prósent af kostnaðaráætluninni. Gert var ráð fyrir því að innanhússfrágangurinn myndi kosta rétt rúmlega níu milljarða.

Ístak hf. sendi tilboð sem var 132,6 prósent af kostnaðaráætlun, tilboð Þarfaþings hf. var 116,2 prósent af kostnaðaráætlun og loks var tilboð ÞG verktaka ehf. upp á 114,4 prósent.

Haft er eftir Gunnari Svarvarssyni, framkvæmdastjóra Nýja Landspítalans, að „það sé fagnaðarefni að verktakar hafi lagt inn metnaðarfull tilboð í áframhald að byggingu rannsóknarhússins“. Nú hefjist vinna við að fara yfir frávikin frá kostnaðaráætlun og önnur formskilyrði.

Í rannsóknarhúsinu á öll rannsóknarstarfsemi spítalans að sameinast á einum stað auk starfsemi blóðbankans. Rannsóknarhúsið er fimm hæða ásamt kjallara og er tengt öðrum húsum Landspítalans með neðanjarðargöngum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×