Skoðun

Sjáðu þig - taktu eftir breytingum

Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir skrifar

Bleikur október er genginn í garð og í ár hvetjum við konur til að beina athyglinni að sjálfum sér undir yfirskriftinni Sjáðu þig. Við leggjum þar sérstaka áherslu á mikilvægi þess að þekkja eigin líkama og líðan og að taka eftir einkennum sem geta bent til krabbameins.

Þú þarft ekki að kunna öll möguleg einkenni krabbameina utan að. Markmiðið er ekki að vera stöðugt á varðbergi eða hafa áhyggjur af hverju smáatriði, heldur að taka eftir breytingum og vita hvenær þörf er á að bregðast við þeim. Í flestum tilvikum eiga einkennin sér aðrar og saklausari skýringar en krabbamein, en það er alltaf ráðlegt að láta athuga málið ef vart verður við óvenjulegar, óútskýrðar og langvarandi breytingar á líðan, útliti eða starfsemi líkamans.

Breytingar geta verið hnútur eða þykkildi sem var ekki þar áður, nýr fæðingarblettur eða breyting á bletti sem þú hefur haft lengi. Breytingar geta líka verið hósti eða hæsi sem ekki fer, viðvarandi óþægindi frá meltingarvegi eða breytingar á hægðum eða þvaglátum sem við getum ekki útskýrt. Óvenjulegar blæðingar, sár sem gróa ekki, viðvarandi verkir eða óvenjuleg og þrálát þreyta eru einnig dæmi um breytingar sem veita ætti athygli.

Gefum okkur tíma til að huga að eigin heilsu

Rannsókn Krabbameinsfélagsins, Áttavitinn, sýndi að 20% kvenna sem greindust með krabbamein á árunum 2015 til 2019 og höfðu fundið fyrir einkennum biðu í þrjá mánuði eða lengur með að leita til læknis og 10% biðu í sjö mánuði eða lengur. Hlutfall karla sem beið í þrjá mánuði eða lengur með að leita til læknis, þrátt fyrir að hafa fundið fyrir einkennum sem síðar reyndust tengjast krabbameini, var enn stærra eða 44%. Það er því töluverður hópur fólks sem bíður lengi með að leita aðstoðar eftir að einkenni koma fram. Því viljum við breyta.

Ýmsar ástæður geta verið fyrir því að við bíðum með að leita til heilbrigðisstarfsfólks eftir að einkenni koma fram. Við teljum okkur ekki hafa tíma og setjum annað í forgang, teljum að einkennin séu ekki nógu alvarleg eða bíðum eftir því að þau gangi yfir. Stundum erum við líka hrædd við að eitthvað alvarlegt gæti komið í ljós.

Látum þó ekki annríki eða hræðslu stöðva okkur. Gefum okkur tíma til að huga að eigin heilsu. Tökum eftir og hlustum á líkamann.

Á vef Krabbameinsfélagsins má nálgast frekari fræðslu um einkenni krabbameina. Því fyrr sem krabbamein greinist, því betri eru batahorfur.

Sjáðu þig.

Höfundur er næringarfræðingur og sérfræðingur í fræðslu og forvörnum hjá Krabbameinsfélaginu.




Skoðun

Skoðun

Glassúrfólkið

Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar

Sjá meira


×