Veður

Milt og blautt í dag

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Ferðamennirnir munu líklega skarta litríkum regnjökkum sínum í miðborginni í dag.
Ferðamennirnir munu líklega skarta litríkum regnjökkum sínum í miðborginni í dag. Vísir/Vilhelm

Við erum á milli veðrakerfa í dag samkvæmt veðurfræðingi og hæg breytileg átt því ríkjandi og dálitlar skúrir í flestum hlutum landsins. Hitinn er frá þremur og upp í tíu stig.

Þetta segir veðurfræðingur á Veðurstofunni í daglegri hugleiðingu sinni. Að hans sögn er vaxandi lægð skammt vestur af Hvarfi, syðsta oddi Grænlands, sem nálgast landið á morgun.

Það verður því suðaustanátt og væta með sunnan- og vestanlands en annars bjartviðri. Annað kvöld bætir svo í vind og úrkomu. Víða verður hvassviðri seint um kvöldið og sums staðar talsverð rigning aðfaranótt mánudags.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á sunnudag:

Hægt vaxandi suðaustanátt, 8-15 m/s síðdegis en hægari norðaustanlands. Stöku skúrir, en þurrt og bjart á Norðurlandi. Hvessir um kvöldið og fer að rigna sunnanlands. Hiti 5 til 10 stig.

Á mánudag:

Sunnan 8-13 m/s og víða rigning, en hægari seinnipartinn og styttir upp á Norður- og Austurlandi. Hiti 5 til 10 stig.

Á þriðjudag:

Breytileg átt 3-8 m/s og rigning eða slydda. Hiti 2 til 8 stig.

Á miðvikudag:

Fremur hæg suðlæg eða breytileg átt og lítilsháttar skúrir, en rigning eða slydda norðan- og austantil. Heldur kólnandi.

Á fimmtudag:

Norðaustlæg eða breytileg átt og úrkomulítið, en rigning á Suðausturlandi. Hiti 0 til 7 stig, mildast syðst

Á föstudag:

Útlit fyrir suðvestlæga átt með skúrum eða slydduél, en þurrt á austanverðu landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×