Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. október 2026 11:00 Framkvæmdastjórarnir þrír ásamt forstjóra Dranga, Auði Daníelsdóttur. Drangar Drangar hefur ráðið nýja framkvæmdastjóra þriggja dótturfélaga, Samkaupa, Orkunnar og Lyfjavals. Tveir koma frá Nóa Siríus og Bauhaus en sá þriðji er hækkaður í tign. Auður Daníelsdóttir forstjóri Dranga hefur fram að þessu jafnframt stýrt rekstri Samkaupa og Orkunnar. Nú er orðin breyting þar á.
Fram kemur í tilkynningu frá Dröngum að Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, sem hætti störfum sem forstjóri Nóa Siríus, hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Samkaupa, móðurfélags verslunarkeðjanna Nettó, SPAR, Prís, Kjörbúðarinnar, Krambúðarinnar, Heimkaupa og 10-11. Hún gegndi starfi forstjóra Nóa Síríus frá árinu 2023. Áður starfaði hún hjá Íslandsbanka sem framkvæmdastjóri einstaklingssviðs frá árinu 2017. Sigríður Hrefna er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands og með MBA-gráðu frá Copenhagen Business School. Hún hefur víðtæka leiðtogareynslu í ýmsum atvinnugreinum bæði hérlendis og erlendis. „Mikil uppbygging hefur átt sér stað í rekstri félaga Samkaupa. Þar má meðal annars nefna nýja ásýnd Nettó sem mælist vel hjá viðskiptavinum. Prís fagnaði nýlega tveggja ára afmæli sínu og hefur frá opnun mælst ódýrasta verslunin samkvæmt athugunum ASÍ,“ segir í tilkynningu frá Dröngum. „Jafnframt hefur fimm Krambúðum hefur verið breytt í SPAR-verslanir með tilkomu nýs viðskiptasamnings við alþjóðlegu verslunarkeðjuna. Með samningnum hefur SPAR getað lækkað verð í verslunum ásamt því að styrkja bæði vöruúrval og verslunarupplifun viðskiptavina.“ Hörður framkvæmdastjóri Orkunnar Hörður Ingi Þórbjörnsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Orkunnar. Hann hefur starfað hjá Orkunni frá árinu 2021 sem mannauðsstjóri og tók sæti í framkvæmdastjórn 2025 sem forstöðumaður rekstrar og mannauðs. Hörður stundaði nám í alþjóðlegri markaðsfræði í Kaupmannahöfn. „Orkan er leiðandi fyrirtæki á eldsneytis- og hraðhleðslumarkaði sem rekur 75 stöðvar um allt land þar sem markmiðið er að bjóða lægsta verðið í öllum landshlutum. Áhersla Orkunnar er á gott aðgengi viðskiptavina að hreinum og snyrtilegum stöðvum þar sem búnaðurinn virkar vel,“ segir í tilkynningunni. Ásgeir framkvæmdastjóri Lyfjavals Ásgeir Bachmann hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Lyfjavals. Hann var áður framkvæmdastjóri Bauhaus þar sem hann starfaði frá árinu 2014. Ásgeir er viðskiptafræðimenntaður frá Háskólanum á Bifröst og hefur víðtæka þekkingu og reynslu af smásölumarkaði. „Lyfjaval er vaxandi fyrirtæki í smásölu lyfja sem leggur áherslu á fjölbreytta og aðgengilega þjónustu við viðskiptavini, m.a. í bílalúgum og með sólarhringsopnun,“ segir í tilkynningunni. Auður Daníelsdóttir, forstjóri Dranga, segir frábært að fá öfluga stjórnendur með víðtæka reynslu og þekkingu úr viðskiptalífinu til að leiða áframhaldandi þróun og uppbyggingu rekstrarfélaganna. „Samkaup er á spennandi tímamótum og er það okkur mikið gleðiefni að fá Sigríði Hrefnu til að stýra félaginu í áframhaldandi sókn á dagvörumarkaði. Hörður þekkir rekstur Orkunnar vel og nýtur trausts okkar til að leiða áframhaldandi vöxt félagsins. Þá er Ásgeir sömuleiðis mikilvægur liðsauki fyrir Lyfjaval til að leiða uppbyggingu og þróun þeirrar þjónustu sem í boði er. Drangar er eitt stærsta verslunar- og þjónustufyrirtæki landsins. Sameiginlegt markmið okkar og rekstrarfélaganna er að þróa heildstæðar lausnir sem mæta þörfum viðskiptavina. Það verður ánægjulegt að vinna með nýju og öflugu stjórnendateymi að því að efla reksturinn og þróa þjónustuna enn frekar. Við erum rétt að byrja.“ Drangar er móðurfélag rekstrarfélaga sem starfa á smásölumarkaði um allt land. Félagið sameinar nokkur vörumerki undir einn hatt. Þar má nefna Nettó, Prís, Spar, 10-11, handverksbakaríið Brauð & Co., Orkuna, Löður og lyfjaverslanir Lyfjavals. Þjónustustöðvar Dranga eru yfir 150 um allt land og starfsmannafjöldinn um 1600 manns að því er segir í tilkynningunni.
Vistaskipti Matvöruverslun Bensín og olía Lyf Mest lesið Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Viðskipti innlent Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Viðskipti innlent Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Viðskipti innlent Sýn sakar Rúv um að mata ráðuneytið á röngum tölum Viðskipti Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Viðskipti innlent Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta Samstarf Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Viðskipti innlent Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi Framúrskarandi fyrirtæki Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Neytendur Fleiri fréttir Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna Sjá meira
Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi Framúrskarandi fyrirtæki
Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi Framúrskarandi fyrirtæki