Berrössuð hjón og endurtekið efni Símon Birgisson skrifar 14. október 2026 07:00 Leikritið Djöflar er eftir sænska leikskáldið Lars Noren og er því leikstýrt af Stefáni Jónssyni. Parið Hilmir Snær og Vala Kristín leika þar hjónin Frank og Katarinu. Borgarleikhúsið Það eru góðar fréttir fyrir leikhúsfólk að Egill Heiðar Anton Pálsson, nýr Borgarleikhússtjóri, vilji bjóða okkur upp á leikrit úr smiðju sænska leikskáldsins Lars Norén. Maður gerir ráð fyrir að á ferli sínum í leikhúsum á Norðurlöndum hafi áhugi Egils á þessu sænska stórskáldi kviknað. Af hverju Djöflar er það verk Lars Norén sem varð fyrir valinu er mér hins vegar aðeins meiri ráðgáta.
Djöflar – Borgarleikhúsið. Frumsýning 8. október. Höfundur: Lars Norén. Leikstjóri: Stefán Jónsson. Leikmynd: Börkur Jónsson. Búningar: Helga I. Stefánsdóttir. Leikarar: Hilmir Snær Guðnason, Vala Kristín Eiríksdóttir, Íris Tanja Flygenring og Haraldur Ari Stefánsson. Stofudrama á sterum Djöflar segja frá parinu Frank og Katarínu sem búa í eins konar lúxusíbúð á óræðum stað og tíma. Fram undan er jarðsetning móður Franks og þau eiga von á gestum sem láta þó aldrei sjá sig. Til að bjarga kvöldinu bjóða þau til sín nágrönnum sínum af neðri hæðinni – Tómasi og Jennu, alþýðufólki með barnmargt heimili (og sín eigin leyndarmál í pokahorninu) sem líta öfundaraugum á hönnunarhúsgögn og lúxusinn í íbúðinni fyrir ofan sig. Hilmir Snær, Vala Kristín, Haraldur Ari og Íris Tanja fara með hlutverk í sýningunni.Borgarleikhúsið Tómas og Jenna eru eins og illa gerðir hlutir í partýi sem verður sífellt skrýtnara. Samskipti Franks og Katarínu einkennast af ofbeldi – bæði líkamlegu og andlegu. Eftir því sem áfengið tekur völdin verða samskiptin hömlulausari og martraðakenndari. Það er varla hægt að kalla þetta hefðbundið stofudrama – þrátt fyrir að formið á verkinu sé vissulega slíkt. Þetta er í raun stofudrama á sterum sem veitir manni innsýn í dimmustu kima mannsálarinnar. Áttavillt nútímafólk Lars Norén skrifar verk um fólk sem þjáist af hinum ýmsu kvillum, geðveiki, þunglyndi, óvissu um eigin kynhneigð eða áfengissýki. Þetta sagði hann vera fylgikvilla „hins áttavillta nútímamanns“. Í verkum Norén er það ekki lygin sem ógnar persónunum heldur einmitt sannleikurinn. Persónurnar tala nánast látlaust og það er allt uppi á borðum. Djöflar einkennast af yfirgengilegum öskrum.Borgarleikhúsið Djöflar falla vel undir þetta stílbragð. Jenna lætur móðan mása þegar hún hittir Frank í dyrunum í upphafi verksins. Frank lætur einræðurnar dynja á eiginkonu sinni og gestum þeirra. Tómas er kannski sá sem í upphafi heldur sig mest til baka en þegar áfengið hefur kikkað inn lætur hann eiginkonu sína heyra það og lætur undan hinum dýrslegri hvötum í lokahluta verksins. Og Katarina spilar skák við Frank, notar sjálfsskaða, hótanir um skilnað og ástarjátningar sem dynja á honum á víxl. Öll samskipti í verkinu jaðra við að vera fáránleg á köflum – svo ýkt eru þau. Á köflum er maður staddur í tragedíu í anda Eugene O'Neill en aðra stundina finnst manni maður vera í leikhúsi fáránleikans. Klaufaleg leikstjórn Stefán Jónsson ákveður í þessari uppsetningu að setja í fimmta gír. Hann stígur pedalann í botn alveg frá fyrstu senunni sem er eins konar erótískt dansatriði þar sem Vala Kristín vaggar sér fáklædd í kynlífsrólu við tónlist Rosalíu. Það eru ekki margar mínútur liðnar af uppsetningunni þegar allar spjarir eru horfnar og Frank hefur hálfpartinn nauðgað Katarínu með höndunum. Vandinn við svona ágenga byrjun er að Stefáni gengur illa að toppa sig í hamaganginum þegar líður á verkið. Skortur á samkennd er tilfinningin sem leitaði einna helst á mig í þessari uppsetningu. Manni er gjörsamlega sama um þetta furðulega fólk sem gerir ekkert annað en að hreyta ónotum, lemja og berja hvort annað. Kannski var þetta ótrúlega sjokkerandi árið 1984 þegar verkið var frumsýnt í Svíþjóð – eflaust var verkið samið í einhvers konar viðspyrnu eða samtali við þá strauma og stefnur sem voru þá ríkjandi í leiklist á þeim tíma; en hvers vegna að grafa þetta upp og hrella okkur Íslendinga með því mörgum áratugum síðar? Endurtekið efni Ég hef ýmislegt út á leikarana að setja en ég skildi samt minna í því hvernig var valið í hlutverk. Mér fannst Hilmir Snær og Vala Kristín ekki passa í hlutverk Katarínu og Franks. Verkið segir manni að þau eigi að hafa verið gift í um áratug og ekki tekist að eignast börn (á meðan Tómas og Jenna mega varla snertast án þess að geta barn). En kannski var það aldursmunurinn á Hilmi og mótleikurum hans sem flækti málin óþarflega – sérstaklega þegar kom að sambandi Franks og Katarínu. Ég hefði verið til í að sjá eldri leikkonu í hlutverki Katarínu eða yngri leikara í hlutverki Franks. Því miður verð ég svo að gefa Hilmi Snæ sjálfum falleinkunn. Hann er frábær leikari og hefur verið í talsverðu framboði síðustu leikár. Mér fannst hann ögra sjálfum sér og sýna manni hvers hann er megnugur bæði í Ketti á heitu blikkþaki, Óresteiu og Hamlet (þar fékk hann líka fínan mótleik frá Sólveigu Arnarsdóttur). En í þessu verki stígur hann aldrei út fyrir þægindarammann, maður hefur séð þetta allt áður, taktana og raddbeitinguna. Stundum fannst mér ég vera að horfa á Hilmi Snæ leika Hilmi Snæ. Hann getur gert miklu betur. Hilmir og Íris Tanja í hlutverkum sínum.Borgarleikhúsið Ég get ekki gagnrýnt Völu Kristínu fyrir að leggja sig ekki fram. Hún ærslast um sviðið, nakin og blóðug. Stóra vandamál Völu er hins vegar raddbeitingin. Röddin hennar er föst í hálsinum og hana skortir hreinlega betri tækni í svona stórt hlutverk. Um leið og samtölin breyttust í öskur og rifrildi heyrði maður varla í henni og hún þarf að vinna meira í tækninni ef hún ætlar sér hlutverk af þessari stærðargráðu í framtíðinni. Mér fannst Haraldur Ari ná að búa til trúverðuga mynd af manni sem þjáist af minnimáttarkennd, hómófóbíu og losta. Jenna, í meðförum Írisar Tönju, varð hins vegar hálfgerð skopmynd – manneskja sem þú býst kannski frekar við að hitta á lokaðri deild en í matarboði og persóna hennar kannski sú sem er einna ótrúverðugust í leikritinu. Undarleg staðfæring Þýðing verksins er í höndum Hlínar Agnarsdóttur, sem hefur þýtt önnur verk Lars Norén hér á landi. Það var ágætis flæði í textanum og stíllinn virkaði hvorki gamaldags né nútímalegur. Það fór hins vegar í taugarnar á mér þegar komu allt í einu tilvísanir í íslenskan veruleika. Skyndilega er farið að tala um Björn Jörund (hefur eflaust verið sænskur tónlistarmaður í frumtextanum). Mér fannst þetta truflandi þó að einhverjum hafi kannski fundist brandarinn fyndinn. Annað svona dæmi var í búningunum. Jenna er með barn á brjósti og mætir svo í peysu með léttmjólkurlógóinu á. Ég geri ráð fyrir að þetta hafi ekki verið dulin auglýsing heldur frekar tilvísun leikstjóra í að hún sé hálfgerð mjólkurkú. Fyrir utan hvað tilvísunin er augljós þá dregur þessi peysa mann líka inn í íslenskan raunveruleika og samtíma, alveg eins og notkun Katarínu á nikótínpúðum. Ef þú ætlar að staðfæra og nútímavæða verkið þá er ekki nóg að bæta bara við tilvísunum í íslenska poppmenningu, það þarf mun heildstæðari skoðun á verkinu sjálfu. Það er erfitt að átta sig á hvar maður er staddur. Íbúðin lúkkar eins og lúxusíbúð á dýrasta stað – Skuggahverfinu til dæmis. En íbúðin á neðri hæðinni er hálfgert hreysi. Tómas og Jenna tilheyra varla sömu stétt og Katarína og Frank? Af hverju búa þau þá í sömu blokk? Kannski var svona stéttablöndun algeng í Svíþjóð á árunum sem verkið er skrifað en hér á Íslandi meikar þetta ekki sens. Æsilegur endasprettur Þrátt fyrir galla er eitt og annað sem hægt er að njóta í Djöflum. Ef maður endist fram yfir hlé þá er lokakaflinn nokkuð skemmtilegur. Samtölin og atburðarásin verða svo yfirgengileg og atriði sem minnti mann á költklassíkina The Big Lebowski hafði ákveðið afþreyingargildi. Lokamyndin þar sem Frank skríður aftur inn í móðurkvið var sjónrænt falleg en líka svolítið tilgerðarleg. Það er áhugavert að hugsa um hvað Lars Norén er að gera í þessu leikriti. Þetta er einhvers konar rannsókn á því hversu langt manneskjur geta gengið í grimmd og öfgum. Það er verið að fjalla um heimilisofbeldi, kúgun, misnotkun og kannski hvernig manneskjur festast í vítahring andlegs ofbeldis. Haraldur Ari og Hilmir Snær stíga smá dans.Borgarleikhúsið Norén neitar að benda á sökudólga. Þegar Tómas ræðst á Frank með barsmíðum fagnar Frank því hlæjandi og biður um meira – kannski eru gamaldags barsmíðar eins og hvíld frá hinu yfirgengilega andlega ofbeldi sem gegnsýrir öll samskipti Franks og Katarínu. Því miður týnast öll þau fínu blæbrigði sem eflaust er að finna í leikritinu í uppsetningu sem tekur sig allt of alvarlega og leggur áherslu á að sjokkera okkur með brjóstum og blóði. Ef tilgangurinn var að kynna Lars Norén fyrir nýrri kynslóð leikhúsfólks á Íslandi held ég að það hljóti að vera betri verk eftir hann til þess fallin en Djöflar. En svo er spurning hvort upplifun manns á verkinu mótist af lélegu leikaravali, slappri frammistöðu aðalleikaranna og algjörum skorti á fínni blæbrigðum í leikstjórn. Niðurstaða Fyrir aðdáendur sænskra vandamálaleikrita er nóg af vandamálum í Djöflum. Sýningin er langdregin og manni stendur á sama um persónurnar. Leikstjórinn virðist uppteknastur af því að hafa leikarana sem fáklæddasta og maður áttar sig ekki á erindi Djöfla við íslenskt samfélag í dag.
Gagnrýni Símonar Birgissonar Borgarleikhúsið Leikhús Menning Tengdar fréttir Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Fortíðarþrá er fallegt íslenskt orð yfir nostalgíu. Sýningin Svikasögur í Borgarleikhúsinu vekur svo sannarlega upp fortíðarþrá hjá okkur áhorfendum (sem eru fæddir fyrir daga snjallsíma og internets) og fyllir yngri áhorfendur eflaust forvitni um það hvernig krakkar gátu mögulega lifað af án samfélagsmiðla og Snap Map. Svikasögur er opnunarsýning Borgarleikhússins í vetur – nýtt íslenskt leikrit eftir Maríu Reyndal, sem fer vel af stað en brotlendir ansi harkalega undir lokin. 25. september 2026 07:00 Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Fyrsta frumsýning vetrarins í Þjóðleikhúsinu er nýtt íslenskt leikrit eftir Friðgeir Einarsson. Umfjöllunarefnið er nokkuð klassískt – karlmaður í kringum fertugt í krísu. Leikritið átti upphaflega að vera sett á svið síðasta leikvetur en var í staðinn sett á ís (líklegast vegna velgengni Óristeiu sem gekk mun lengur í Kassanum en upphafleg plön gerðu ráð fyrir). En nú fáum við loksins að sjá eldhúsverk Friðgeirs – nokkuð vel skrifað stofudrama, fyndið á köflum en skortir meiri dýpt til að snerta raunverulega við manni. 23. september 2026 07:02 Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Ekkert offors hjá Fors Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Kát á kynfræðslukarnivali Menning Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Fleiri fréttir Berrössuð hjón og endurtekið efni Digger grefur sína eigin gröf Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Sjá meira
Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Fortíðarþrá er fallegt íslenskt orð yfir nostalgíu. Sýningin Svikasögur í Borgarleikhúsinu vekur svo sannarlega upp fortíðarþrá hjá okkur áhorfendum (sem eru fæddir fyrir daga snjallsíma og internets) og fyllir yngri áhorfendur eflaust forvitni um það hvernig krakkar gátu mögulega lifað af án samfélagsmiðla og Snap Map. Svikasögur er opnunarsýning Borgarleikhússins í vetur – nýtt íslenskt leikrit eftir Maríu Reyndal, sem fer vel af stað en brotlendir ansi harkalega undir lokin. 25. september 2026 07:00
Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Fyrsta frumsýning vetrarins í Þjóðleikhúsinu er nýtt íslenskt leikrit eftir Friðgeir Einarsson. Umfjöllunarefnið er nokkuð klassískt – karlmaður í kringum fertugt í krísu. Leikritið átti upphaflega að vera sett á svið síðasta leikvetur en var í staðinn sett á ís (líklegast vegna velgengni Óristeiu sem gekk mun lengur í Kassanum en upphafleg plön gerðu ráð fyrir). En nú fáum við loksins að sjá eldhúsverk Friðgeirs – nokkuð vel skrifað stofudrama, fyndið á köflum en skortir meiri dýpt til að snerta raunverulega við manni. 23. september 2026 07:02