Lífið

Píparapæja selur pent „penthouse“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Aníta Björt, Iðnaðarmaður ársins 2026, er að selja krúttlega rishæð í Úthlíð.
Aníta Björt, Iðnaðarmaður ársins 2026, er að selja krúttlega rishæð í Úthlíð.

Píparapæjan Aníta Björk hefur sett litla og sæta þakíbúð sína í Úthlíð á sölu. 

Aníta vakti athygli þegar hún hreppti titilinn Iðnaðarmaður ársins í vor í kosningu útvarpsstöðvarinnar X-977 og Sindra.

Íbúðin er í Úthlíð 11 í 105 hverfinu, nálægt Klambratúni. Er um að ræða þriggja herbergja rishæð í fjórbýli í hinum sívinsælu Hlíðum í Reykjavík. Skráður fermetrafjöldi er 42,3 fermetrar en gólfflötur íbúðarinnar er mun stærri en fermetrar segja til um og geymslurými er undir súð í íbúð. Ásett verð er 52,9 milljónir en á fasteignavef Vísis má nálgast nánari upplýsingar um eignina. 

Sjarmerandi eldhús.REMAX
Björt og lúmskt rúmgóð stofa.REMAX
Gólfflötur íbúðarinnar er stærri en fermetrafjöldi gefur til kynna.REMAX
Gluggi með útsýni yfir Perluna.REMAX
Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni.REMAX
Íbúðin er á rishæð að Úthlíð 11.REMAX
Litríkir veggir.REMAX
Eignin er í 105 hverfinu, rétt hjá Klambratúni og í göngufæri við miðbæinn.REMAX





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.