Skoðun

Skörum fram úr í skað­legu skattaumhverfi

Elliði Vignisson skrifar

Við búum í landi þar sem skattaumhverfið er skaðlegt. Ísland er í 34. sæti af 38 OECD-ríkjum í vísitölu Tax Foundation um samkeppnishæfni skattkerfa árið 2026. Aðeins fjögur ríki standa verr. Þetta er áfellisdómur yfir þeirri skattastefnu sem stjórnvöld bera ábyrgð á og viðvörun um undirstöður lífskjara landsmanna.

Viðbrögðin ættu að vera einföld: að gera landsmönnum auðveldara að skapa verðmæti með hagstæðara skattaumhverfi. Samt er fyrsta viðbragð vinstrisins við nánast hverjum vanda að leita að einhverju fleiru til að skattleggja. Vinstrimenn eru sannarlega ekki með skattahræðslu. Eiga reyndar mjög auðvelt með að sækja fé til annarra.

Síðan er látið eins og reikningurinn hverfi inn í fyrirtækin. Hann gerir það ekki. Hann getur komið út í færri fjárfestingum, lakari samkeppnisstöðu og störfum sem verða aldrei til. Hann getur líka valdið atvinnuleysi, skert lífsgæði og aukið verðbólgu, svona eins og við sjáum núna. Þegar skattkerfið dregur úr arðsemi nýrrar framleiðslu minnkar viljinn til að leggja fé í hana. Rannsóknir OECD staðfesta að skattlagning fyrirtækja og reglur um frádrátt fjárfestingarkostnaðar hafa áhrif á fjárfestingu. Þetta vita meira að segja hagfræðingar vinstrisins.

Þetta snertir launafólk beint. Ný tæki, betri tækni og öflugri fyrirtæki gera okkur kleift að skapa meiri verðmæti á hverri vinnustund. Það er grunnurinn að varanlegum launahækkunum og auknum kaupmætti. Veikjum við þann grunn drögum við úr framtíðarlífsgæðum landsmanna. Engin pólitísk ræða getur afnumið það samhengi.

Hér liggur grundvallarmunurinn á hægri og vinstri. Við hægrimenn viljum að fólk og fyrirtæki hafi aukið svigrúm til að vinna, fjárfesta og byggja upp. Vinstrið vill að afrakstur þessara verka renni að ráðandi hluta til hins opinbera. Þar er ríkissjóður of oft gerður að upphafi og endapunkti allrar efnahagsumræðu.

Auðvitað þarf að fjármagna skóla, heilbrigðisþjónustu og innviði. Einmitt þess vegna er svo hættulegt að veikja atvinnulífið sem stendur undir fjármögnuninni. Sá sem hamlar verðmætasköpun í nafni velferðar er að grafa undan velferð almennings.

Við þurfum einfaldara skattkerfi, fyrirsjáanlegar reglur og sterkari hvata til fjárfestinga. Við þurfum stjórnmálamenn sem gera sömu kröfu um ráðdeild til sjálfra sín og þau gera um greiðslugetu almennings.

Það er nefnilega auðvelt að lofa betri lífskjörum fyrir annarra manna fé. Erfiðara er að skapa skilyrðin sem gera þau möguleg.

Vinstrið má kalla skattahækkanir réttlæti eins oft og það vill. Færri tækifæri, aukið atvinnuleysi, minni kaupmáttur og lakari lífskjör verða ekki réttlátari við það.

Höfundur er bæjarstjóri í Ölfusi.




Skoðun

Sjá meira


×