Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar 19. október 2026 17:00 Í grein sinni „Spjall við Guð“ á Vísi 18. Október lýsir Atli Sævar Guðmundsson draumi þar sem guð útskýrir að rót helstu vandamála mannkynsins sé sú ákvörðun mannsins að halda dýrum til matar. Lausnin felist í því að hætta neyslu dýraafurða, rækta samkenndina og leita inn á við. Þannig geti mannkynið endurheimt paradís. En guð draumsins gengur enn lengra. Hann segir að Jesús Kristur hafi verið krossfestur vegna þess að hann mótmælti slátrun dýra og viðskiptum með þau í musterinu. Valdamiklir menn hafi síðan endurskrifað sögu Jesú Krists til að vernda hagsmuni sína. Þarna staldraði ég aðeins við… Því þetta hafði ég aldrei lært í KFUM. Ég hef svosem ekkert við það að athuga að fólk kjósi að neyta ekki dýraafurða, hvort sem það er af siðferðilegum, heilsufarslegum eða umhverfislegum ástæðum. Umhyggja fyrir dýrum er sjálfsögð og á sér raunar skýra stoð í Ritningunni (Okv 12:10). En þegar við förum að endurtúlka boðskap Jesú Krists og tilgang krossfestingarinnar á þann hátt að hann stangist á við þær heimildir sjónarvotta sem við höfum um Jesúm, erum við komin inn á allt annað svið. Það merkilega er að Jesús fjallaði sjálfur um samband matar og þess sem saurgar manninn. Í Markúsarguðspjalli 7:15 segir Jesús: „Ekkert er það utan mannsins, er saurgi hann, þótt inn í hann fari. Hitt saurgar manninn, sem út frá honum fer.“ Þegar lærisveinarnir biðja hann að útskýra þessi orð bendir Jesús á að maturinn fari ekki inn í hjarta mannsins heldur í magann (Mrk 7:18–19). Markús bætir við að með þessu hafi Jesús lýst alla fæðu hreina. En Jesús lætur ekki staðar numið. Hann heldur áfram og útskýrir hvað það er sem í raun saurgar manninn: „Það sem fer út frá manninum, það saurgar manninn. Því að innan frá, úr hjarta mannsins, koma hinar illu hugsanir, saurlifnaður, þjófnaður, manndráp, Hórdómur, ágirnd, illmennska, sviksemi, taumleysi, öfund, lastmælgi, hroki, heimska. Allt þetta illa kemur innan að og saurgar manninn.“ (Mrk 7:20–23). Takið eftir röksemdafærslu Jesú… Hann greinir á milli þess sem fer inn í manninn utan frá og þess sem kemur úr hjarta hans. Upphaflegt samhengi þessara orða er ágreiningur um trúarlegan hreinleika og erfikenningar manna. Jesús er ekki að ræða hvort allar aðferðir við matvælaframleiðslu séu siðferðilega réttlætanlegar. En hann er að afhjúpa nokkuð sem skiptir hér grundvallarmáli: Ágirnd, manndráp, sviksemi og öfund eiga sér rætur í hjarta mannsins. Slæm meðferð dýra getur vissulega verið birtingarmynd mannlegrar græðgi og miskunnarleysis. En það er annað en að halda því fram að nýting dýra til matar sé sjálf frumorsök græðginnar og alls þess ofbeldis sem mannkynið hefur framið. Þetta er ekki smávægilegur guðfræðilegur ágreiningur. En hér verður málið enn athyglisverðara. Atli leggur fyrir guð í draumnum spurninguna um uppruna stríðs, haturs og ofbeldis. Jakob spyr nánast sömu spurningar í fjórða kafla Jakobsbréfs: „Af hverju koma stríð og af hverju sennur meðal ykkar?“ (Jak 4:1). En áður en við skoðum svar hans er rétt að líta aðeins aftar í bréfið. Í þriðja kaflanum hefur Jakob þegar fjallað um öfund og eigingirni sem búa í hjarta mannsins. Þar segir hann að slíkt leiði til óstjórnar og hvers kyns spillingar (Jak 3:14–16). Síðan lýsir hann allt annarri speki: „En sú speki sem að ofan er, hún er í fyrsta lagi hrein, því næst friðsöm, ljúfleg, sáttgjörn, full miskunnar og góðra ávaxta“ (Jak 3:17). Og takið eftir þessu: Jakob segir að þessi speki komi að ofan. Síðan spyr hann í upphafi fjórða kaflans hvaðan stríð og deilur meðal þeirra komi. Og hvert er svar hans? „Af hverju öðru en girndum ykkar sem heyja stríð í limum ykkar?“ (Jak 4:1). Jakob er vissulega að ávarpa deilur meðal viðtakenda bréfsins, en greining hans á mannlegri eigingirni hefur mun víðari skírskotun. Hann bendir á girndirnar sem heyja stríð innra með manninum. Menn girnast, öfunda og berjast vegna þess sem býr í þeim sjálfum. En Jakob gengur lengra. Hann segir að menn biðji jafnvel Guð án þess að öðlast það sem þeir biðja um, vegna þess að þeir biðji illa. Þeir vilji nota það sem þeir fá til að fullnægja eigin löngunum (Jak 4:3). Erum við að sjá hvað hann er að afhjúpa? Vandinn er ekki aðeins skortur á sjálfsþekkingu. Maðurinn getur jafnvel tekið trúarlegt tungumál og beint því að eigin girndum. Hann getur talað við Guð en samt látið eigin langanir ráða ferðinni. Erum við ekki að sjá hér athyglisverða andstæðu? Atli býður okkur að líta inn á við til að finna sannleikann og lausnina á vanda mannkynsins… Jakob beinir athygli okkar einnig inn á við, en þar afhjúpar hann sjálfa rót vandans. Annar lítur inn á við og segist finna leiðina til paradísar. Hinn lítur inn á við og uppgötvar hvers vegna við þurfum frelsarann Jesú Krist. Og þar liggur grundvallarmunurinn. Það er vissulega mikilvægt að þekkja sjálfan sig, skoða eigin hvatir, viðurkenna eigingirni sína og horfast í augu við það sem þarf að breytast. En sjálfsþekking er ekki það sama og frelsun eða hjálpræði. Það eitt að ég uppgötvi eigingirni mína merkir ekki að ég hafi öðlast vald til að uppræta hana. Og þótt ég verði meðvitaður um ágirnd mína er ekki þar með sagt að ég sé laus undan henni. Þess vegna endar Jakob ekki greiningu sína með því að hvetja okkur til að leita sífellt dýpra inn í okkur sjálf. Hann bendir á náð Guðs: „En því meiri er náðin sem hann gefur.“ (Jak 4:6). Og takið eftir því sem kemur á eftir… „Gefið ykkur því Guði á vald“ (Jak 4:7). „Nálægið ykkur Guði og þá mun hann nálgast ykkur“ (Jak 4:8). „Auðmýkið ykkur fyrir Drottni og hann mun upphefja ykkur“ (Jak 4:10). Jakob kallar manninn til iðrunar, auðmýktar og þess að gefa sig Guði á vald. Hann talar meira að segja um að hreinsa hendurnar og gera hjörtun flekklaus. Breytingin á ekki aðeins að vera innri tilfinning. Hún á að birtast í lífi mannsins. En náðin kemur frá Guði. Maðurinn er kallaður til að bregðast við henni. Þarna erum við komin að kjarna kristinnar trúar. Maðurinn þarfnast ekki aðeins betri sjálfsþekkingar eða breyttra lífshátta. Hann þarfnast náðar og frelsunar sem hann getur ekki veitt sjálfum sér. Og hér er athyglisvert að Jesús gengur enn lengra. Þegar Nikódemus, farísei og lærifaðir í Ísrael, kemur til Jesú og ræðir við hann um Guð, segir Jesús nokkuð sem ætti að vekja okkur til umhugsunar: „Enginn getur séð Guðs ríki nema hann fæðist að nýju.“ (Jóh 3:3). Í gríska textanum getur orðið sem þýtt er „að nýju“ einnig merkt „að ofan“. Og nú verður samtalið við Nikódemus sérstaklega mikilvægt. Jesús segir honum ekki að hann þurfi einfaldlega að kynnast sjálfum sér betur, öðlast æðra vitundarstig eða rækta þá góðu eiginleika sem þegar búi innra með honum. Hann segir að maðurinn verði að fæðast að nýju. Þegar Nikódemus skilur þetta sem aðra líkamlega fæðingu leiðréttir Jesús þann misskilning. Hann talar um að fæðast af vatni og anda og greinir á milli þess sem fæðist af holdi og þess sem fæðist af anda (Jóh 3:5–8). Þetta er ekki aðeins spurning um aukna meðvitund, nýtt hugarfar eða betri lífsvenjur. Jesús er að tala um nýtt líf sem maðurinn getur ekki skapað sjálfur, heldur er verk anda Guðs. Umbreytingin verður innra með manninum, en uppspretta hennar er ekki maðurinn sjálfur. Hún kemur frá Guði. Og Jesús lætur ekki staðar numið við nauðsyn nýrrar fæðingar. Í sama samtali talar hann um að Mannssonurinn verði upp hafinn, svo að hver sem á hann trúir öðlist eilíft líf (Jóh 3:14–17). Þannig tengir Jesús sjálfur þörf mannsins fyrir nýtt líf við fullnað frelsunarverk sitt. Páll postuli orðar þetta með sláandi hætti í Rómverjabréfinu 8: „Það sem lögmálinu var ógerlegt, þar eð það var vanmegna gagnvart sjálfshyggju mannsins, það gerði Guð með því að senda sinn eigin son“ (Róm 8:3). Takið eftir orðunum: Það gerði Guð. Páll er hér að tala um það sem lögmálið gat ekki gert vegna syndugs ástands mannsins. Það sem lögmálið gat ekki áorkað gerði Guð með því að senda son sinn og dæma syndina. Og Páll heldur áfram að lýsa lífi þeirra sem andi Guðs býr í (Róm 8:9–11). Þetta er ekki höfnun á innri umbreytingu. Þvert á móti. En hún er ekki sjálfsfrelsun mannsins. Hún er verk Guðs í manninum. Þess vegna er fagnaðarerindið ekki sagan af manninum sem fann Guð djúpt inni í sjálfum sér og hætti að borða kjöt. Það er sagan af Guði sem kom sjálfur til mannsins. Jóhannes orðar það svo: „Og Orðið varð hold, hann bjó með oss, fullur náðar og sannleika, og vér sáum dýrð hans, dýrð, sem sonurinn eini á frá föðurnum.“ (Jóh 1:14). Frelsarinn kemur til okkar, ekki aðeins til að afhjúpa það sem býr í hjartanu, heldur til að frelsa okkur og endurnýja okkur fyrir anda sinn. En hvað með krossfestinguna? Guðspjöllin segja vissulega frá því að Jesús hafi rekið kaupmenn úr musterinu. Hann mótmælti því að hús föður síns væri gert að markaðstorgi (Jóh 2:13–17). En frásagnirnar segja hvergi að tilgangur aðgerða hans hafi verið að afnema dýraslátrun. Raunar segir Jóhannesarguðspjall 21:9–13 frá því að hinn upprisni Jesús hafi sjálfur gefið lærisveinum sínum fisk að borða. Og Lúkasarguðspjall 24:42–43 segir beinlínis að Jesús hafi sjálfur neytt steikts fisks frammi fyrir lærisveinum sínum. Það samræmist illa þeirri hugmynd að meginmarkmið hans hafi verið að frelsa mannkynið undan allri neyslu dýra. Og þegar Páll dregur saman fagnaðarerindið í 1. Korintubréfi 15:3–4 segir hann að Kristur hafi dáið vegna synda okkar, verið grafinn og risið upp á þriðja degi. Þetta er sá boðskapur sem Páll segist sjálfur hafa tekið við og síðan miðlað áfram. Þessi guðfræðilega skýring á merkingu dauða Krists kemur ekki í stað sögulegrar rannsóknar á atburðunum sem leiddu til krossfestingarinnar. En ef því er haldið fram að saga Jesú hafi verið endurskrifuð til að fela hinn raunverulega tilgang dauða hans, hlýtur að mega spyrja: Hvaða áreiðanlegu heimildir styðja þá fullyrðingu? Páll fjallar einnig um mataræði í Rómverjabréfinu 14. Þar talar hann um þá sem telja sér heimilt að neyta alls og þá sem neyta aðeins jurtafæðu. Hann skipar þeim ekki að fyrirlíta eða dæma hver annan vegna mataræðisins. Og hann segir: „Guðs ríki er ekki matur og drykkur heldur réttlæti, friður og fögnuður í heilögum anda“ (Róm 14:17). Þetta leysir okkur auðvitað ekki undan þeirri siðferðilegu ábyrgð að fara vel með dýr eða umgangast sköpunina af virðingu. Páll leggur einmitt áherslu á kærleika og tillitssemi í þessum sama kafla. En hann minnir okkur á að Guðs ríki verður ekki skilgreint út frá matseðli mannsins. Og þá komum við að því sem mér fannst athyglisverðast í grein Atla. Undir lok draumsins segir guð við hann: „Þú ert að segja þér þetta sjálfur.“ Þessi setning er eiginlega lykillinn að allri greininni. Það er ekkert athugavert við að nota drauma eða ímyndunaraflið til að koma eigin sannfæringu á framfæri. En þegar slík frásögn er notuð til að setja fram fullyrðingar um það hvað Guð hefur opinberað, hvað Jesús Kristur kenndi og hvers vegna hann var krossfestur, þá verðum við að leyfa heimildunum um hann að tala, jafnvel þegar þær segja eitthvað annað en við hefðum sjálf kosið. Og hér er raunar athyglisverð frásögn í Nýja testamentinu sem tengist bæði mat og samtali við Guð. Í Postulasögunni 10 segir frá því að Pétur postuli hafi séð himininn opinn og stóran dúk síga niður með alls kyns dýrum. Þá heyrðist rödd sem sagði: „Slátra nú, Pétur, og et!“ (Post 10:13). Pétur mótmælti þegar í stað. „Nei, Drottinn, engan veginn, aldrei hef ég etið neitt vanheilagt né óhreint.“ (Post 10:14). En röddin svaraði: „Eigi skalt þú kalla það vanheilagt, sem Guð hefur lýst hreint!“ (Post 10:15). Þetta gerðist þrisvar sinnum. Nú væri auðvelt að grípa þessi orð og nota þau sem rök fyrir kjötneyslu. En þá værum við sjálf að gera nákvæmlega það sem við verðum að varast… Að taka orð Ritningarinnar úr samhengi og láta þau þjóna fyrirfram ákveðinni niðurstöðu. Því Pétur útskýrir sjálfur hvað Guð var að kenna honum. Þegar hann kemur til Kornelíusar, sem var heiðingi, segir hann: „En Guð hefur sýnt mér, að ég á engan að kalla vanheilagan eða óhreinan.“ (Post 10:28). Og síðar: „Sannlega skil ég nú, að Guð fer ekki í manngreinarálit.“ (Post 10:34). Megintilgangur sýnarinnar var ekki að gefa Pétri nýjan matseðil. Guð var að leiðrétta skilning hans á því hverjir mættu taka við fagnaðarerindinu og tilheyra samfélagi Guðs. Og hvað boðaði Pétur þegar hann kom til Kornelíusar? Hann boðaði Jesú Krist, dauða hans og upprisu, og að hver sem trúir á hann fái fyrirgefningu syndanna fyrir hans nafn (Post 10:39–43). En mér finnst annað sérstaklega eftirtektarvert við þessa frásögn. Í grein Atla er guð draumsins látinn staðfesta sannfæringu sem höfundurinn hafði þegar tileinkað sér. Í sýn Péturs gerist hins vegar hið gagnstæða. Guð ögrar sannfæringu postulans og leiðir hann til að endurskoða það sem hann hafði áður talið víst. Pétur var meira að segja svo sannfærður um eigin afstöðu að hann mótmælti því sem honum var sagt. En hann varð að læra að hans eigin sannfæring var ekki mælikvarðinn á sannleika Guðs. Og hér sjáum við áhugaverðan sameiginlegan þráð í þeim ritningartextum sem við höfum skoðað. Í Jakobsbréfinu 4 er afhjúpað hvernig maðurinn getur jafnvel látið bænir sínar og trúariðkun þjóna eigin löngunum. Í Jóhannesarguðspjalli 3 leiðréttir Jesús skilning Nikódemusar og sýnir honum að maðurinn þarfnast nýrrar fæðingar af anda Guðs. Og í Postulasögunni 10 leiðréttir Guð Pétur og opnar augu hans fyrir því sem Guð er að gera meðal heiðingjanna. Þetta er ekki nákvæmlega sama guðfræðilega viðfangsefnið í öllum þremur textunum. En þeir eiga eitt sameiginlegt: Mannleg sannfæring verður að lúta sannleika Guðs, ekki öfugt. Og það er einmitt prófið sem við verðum að leggja á allar fullyrðingar um Guð, hvort sem þær birtast í draumi, trúarlegri hefð, prédikun eða svargrein eins og þessari. Það nægir ekki að eitthvað hljómi fallega, höfði til samkenndar okkar eða falli vel að þeirri heimsmynd sem við höfum þegar tileinkað okkur. Við verðum að vera tilbúin að spyrja hvort það sé í raun satt. Og ef við segjumst hlusta á Guð verðum við líka að vera tilbúin að láta hann leiðrétta okkur. Atli lýkur grein sinni með fallegu boði um að leita inn á við og breyta heiminum innan frá. Ég tek undir að raunveruleg umbreyting þurfi að ná til hjarta mannsins. En Ritningin afhjúpar nokkuð sem við megum ekki horfa fram hjá. Þegar við lítum inn á við finnum við ekki aðeins kærleika, samkennd og góðan vilja. Við finnum líka eigingirni, öfund, ágirnd og þær girndir sem Jakob segir að heyji stríð innra með okkur. Og það er einmitt ástæðan fyrir því að kristin trú boðar frelsara. Við þurfum ekki aðeins að uppgötva hvað býr í hjartanu. Við þurfum að hjartað verði endurnýjað. Það er ekki eitthvað sem við getum einfaldlega hugsað okkur til eða framleitt með eigin sjálfsþekkingu. Það er náð Guðs. Og kannski er það einmitt það erfiðasta við samtal við Guð… Að vera tilbúinn að heyra eitthvað annað en það sem við höfum þegar sagt sjálfum okkur. Því að vandinn við að búa sér til guð sem er alltaf sammála manni er ekki aðeins sá að maður getur haft rangt fyrir sér. Hann er sá að maður hefur búið sér til guð sem getur aldrei leiðrétt mann. Guð kristinnar trúar er ekki spegilmynd okkar eigin sannfæringar. Og krossinn er ekki matseðill. ___ Höfundur er iðnaðarmaður og guðfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Sjá meira
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun