Skafið og saltað Bjarki Sigurðsson skrifar 21. október 2026 07:07 „Hvar er nú skafan mín?“ hugsuðu eflaust margir með sér í morgun þegar þeir sáu að þeir þyrftu aðeins að hafa fyrir því að komast af stað í vinnuna í morgun. Aðrir voru löngu búnir að finna hana til enda var næturfrost fyrr í mánuðinum. Vísir/Bjarki Í nótt verður úrkoma um mest allt norðanvert landið, rigning við ströndina, annars slydda eða snjókoma. Í nótt var næturfrost víða á höfuðborgarsvæðinu og þurftu margir að rífa sköfuna upp í morgun. Þá hefur sést til saltbíla á götum borgarinnar og á bílastæðum.
Skil liggja yfir og við Austfirði sem rignir úr og líklega slydda til fjalla. Síðar í dag koma skilin lengra inn á land og fylgir þeim heldur svalara veður svo útlit er fyrir að snjói yfir um það bil tvö hundruð metrum yfir sjávarmáli. „Á morgun kemur dálítill úrkomubakki inn syðst á landinu og má búast við skúrum eða slydduéljum. Heldur hlýnar fyrir norðan svo snjólínan mun hækka og líklega snjóar eingöngu til fjalla og annað kvöld,styttir upp að mestu á þeim slóðum. Hiti almennt 1 til 6 stig að deginum. Á föstudag er svo áfram gert ráð fyrir fremur hægum vindi og líkur á stöku skúrir eða él í flestum landshlutum. Hiti svipaður áfram,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Austlæg eða breytileg átt, víða þrír til metrar á sekúndu í dag, en átta til fimmtán metrar á Vestfjörðum seinnipartinn. Rigning eða slydda með köflum á láglendi og snjókoma inn til landsins, en þurrt að kalla á Suður- og Vesturlandi. Breytileg átt, þrír til átta metrar á morgun. Dálítil rigning eða skúrir sunnantil, smáél á Vestfjörðum en annars bjart með köflum. Hiti eitt til átta stig að deginum, mildast á Austfjörðum. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Suðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og dálítil rigning eða slydda öðru hvoru, en úrkomulítið á Norðurlandi. Hiti 1 til 6 stig. Á föstudag: Hæg breytileg átt og skýjað með köflum, en slydda eða rigning suðaustanlands og dálítil él á Vestfjörðum. Hiti 0 til 5 stig. Á laugardag (fyrsti vetrardagur): Norðaustan gola eða kaldi. Skýjað með köflum og stöku él á víða og dreif. Hiti breytist lítið. Á sunnudag: Norðvestlæg átt og dálítil slydda eða snjókoma með köflum norðan- og austanlands, en annars víða bjartviðri. Hiti nærri frostmarki. Á mánudag: Líkur á hæglætisveðri en líklega él á norðaustanverðu landinu. Fremur svalt í veðri. Á þriðjudag: Útlit fyrir breytilega átt. Snjókoma eða slydda nyrst en bjart og þurrt annars staðar. Heldur mildara.
Veður Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Fleiri fréttir Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Sjá meira