Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar 21. október 2026 17:30 Það er merkilega þægilegt að hafa heiminn á hreinu. Að vita hvernig fólk er. Hvernig maður sjálfur er. Hvernig hlutirnir enda. Hvað er hægt og hvað er ekki hægt. Og best af öllu: að hafa staðreyndirnar til að sanna það. Fortíðin verður sönnunargagn, reynslan verður regla og allt sem gerist næst er flokkað eftir því sem maður veit nú þegar. Þannig getur maður orðið mjög fróður en um leið lokað sig inni. Maður telur sig einfaldlega vera raunsæjan. En smám saman verður veruleikinn fyrirsjáanlegur, drungalegur og mögulega hættulegur. Fólk breytist ekki. Heimurinn er svona. Ég er bara svona. Þetta fer alltaf svona. Manneskja með staðreyndirnar á hreinu þarf alls ekki að vera fáfróð. Hún getur verið gríðarlega upplýst, lesið rannsóknir, fylgst með heimsmálum, þekkt söguna og haft staðreyndir á reiðum höndum um nánast hvað sem er. En magn upplýsinga segir ekkert um hversu opinn hugurinn er. Þú getur vitað ótrúlega mikið um heiminn og samt aðeins leyft þér að sjá þann heim sem þekking þín hefur þegar staðfest. Þekking opnar ekki sjálfkrafa hugann. Hún getur líka lokað honum. Því fleiri staðreyndir sem þú hefur til að verja þína heimsmynd, því sterkari geta veggir hennar orðið. Maður getur verið gríðarlega fróður um hið staðfesta og samt nánast ólæs á hið óstaðfesta. Hið óstaðfesta Andstæða staðreyndarinnar er ekki lygi eða húmbúkk. Það er mikilvægt. Við erum ekki að tala um staðreynd eða ósannindi. Við erum að tala um hið staðfesta og hið óstaðfesta. Hið staðfesta er það sem hefur gerst, sést, mælst, verið upplifað eða sannað. Hið óstaðfesta er það sem hefur ekki enn tekið á sig form staðreyndar. Það er ósýnilegt berum augum. Það svamlar um í vökulum huga og kallast möguleiki. Staðreynd getur verið köld. Eins og klaki. Frosin í tíma. Hún segir: Þetta er það sem er. Þetta er það sem gerðist og verður. Þetta er það sem mældist. Vandinn byrjar þegar við látum hana segja meira. Blóðprufa. Myndataka. Greining. Skuld. Aldur. Sambandsslit. Mistök. Fortíð. Það sem er satt í dag verður að sviðsmynd um morgundaginn. Svo harðnar þetta að sjálfsmynd með leiðigjörnum varnarviðbrögðum. Ég er veikur. Ég er blankur. Ég er bara svona. Þar harðnar staðreyndin. Hún hættir að vera upplýsingar og verður að endapunkti. Og þar kemur staðreyndakoddinn til sögunnar. Hann er mjúkur vegna þess að vissan er þægileg. Á honum þarf maður ekki að hætta á vonbrigði, endurskoða sjálfan sig eða stíga inn í eitthvað sem hefur ekki enn verið sannað. En í koddanum eru naglar. Hver ný staðreynd sem staðfestir heimsmyndina stingur aðeins dýpra og samt liggur maður kyrr. Maður leitar jafnvel að fleiri nöglum. Fleiri dæmum. Fleiri rannsóknum. Fleiri sögum. Fleiri sönnunargögnum fyrir því að heimurinn sé nákvæmlega eins og maður heldur. Og nóg er til af þeim. Þetta er hættan við staðreyndir. Ekki að þær séu rangar, heldur að við notum réttar staðreyndir til að byggja lokaða framtíð. Staðreyndir eru vegvísir, ekki dauðadómur. Þær geta sagt okkur hvar við stöndum í rauntíma, hvað hefur gerst og hvaða mynstur hafa endurtekið sig áður. En þær geta ekki staðfest það sem hefur ekki gerst enn. Hver er staðreyndin þín? Að þú sért alltaf blankur? Að líkaminn þinn sé veikur ? Að þú sért alltaf að ströggla í eilífu stressi? Kannski hefurðu fullt af staðreyndum sem sanna það fyrir þér. Hættan skapast þegar þú ferð ómeðvitað að leita að fleiri staðreyndum til að styðja það sem þú hefur þegar ákveðið að sé satt. Þá verður upplýsingaleitin ekki lengur leit að því sem er, heldur að sönnunargögnum fyrir kyrrstöðunni. Þannig getur maður safnað staðreyndum utan um eigið hreyfingarleysi þar til þær mynda sannfærandi rök fyrir því að ekkert geti breyst nema staðreyndirnar sanni það fyrst. Dauðadóm sem upp er kveðinn með vísan til sönnunargagna sem maður hefur sjálfur safnað. Viltu lifa einungis með staðreyndum? Höfundur er heildrænn ráðgjafi og mastersnemi í heildrænum læknavísindum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun