Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar 21. október 2026 14:03 María Heimisdóttir landlæknir birti grein á Vísi 16. október til stuðnings frumvarpi Ölmu Möller heilbrigðisráðherra um hertar reglur um nikótínvörur. Greinin er full af röngum tölum, villandi samanburði og hræðsluorðum. Ekki er hægt að lesa hana sem faglega ráðgjöf, heldur sem pólitíska stuðningsyfirlýsingu við frumvarp ráðherra sem enn er til meðferðar á Alþingi. Embætti landlæknis á að vera traustasta uppspretta hlutlægra upplýsinga um heilbrigðismál í landinu. Þegar landlæknir stígur inn í miðja lagasetningu og leggur nafn embættisins við málflutning ráðherra er lágmarkskrafa að stuðst sé við beinharðar staðreyndir. Svo er ekki. Danska talan sem er röng Í greininni er því haldið fram að Danmörk leyfi 9 mg/g af nikótíni í púðum en Ísland 20 mg/g, eða „meira en tvöfalt“. Þetta er kolrangt. Danska reglugerðin miðar við 9 mg í hverjum púða, ekki á hvert gramm. Það stendur svart á hvítu. Íslenska reglan miðar við 20 mg á hvert gramm. Landlæknir ber saman epli og appelsínur og dregur af því ályktun sem á að réttlæta lagasetningu. Hvert land setur sínar reglur út frá eigin aðstæðum. Á Íslandi hefur ríkið sjálft lengi selt íslenskt neftóbak, sem stór hluti notenda tekur í vör. Árið 2019 seldi ÁTVR 46 tonn af því. Samkvæmt ÁTVR inniheldur neftóbakið 28 mg/g af nikótíni. Það er auk þess tóbak og inniheldur því krabbameinsvaldandi efni sem ekki hafa mælst í nikótínpúðum. Það skýtur skökku við að landlæknir hafi áhyggjur af nikótínmagni í púðum, á meðan ríkið selur sjálft tóbaksvöru sem er bæði skaðlegri og með hátt nikótíninnihald. Embætti með heilan her sérfræðinga á að geta lesið mælieiningu og þekkja þá tóbaksvöru sem íslenska ríkið framleiðir sjálft og selur. Annaðhvort var þetta ekki kannað eða ekki hirt um að hafa það rétt. Hvorugt er boðlegt. Gömul tala í erlendri skýrslu Landlæknir segir að þriðjungur Íslendinga á aldrinum 18–24 ára noti nikótínpúða og vísar í skýrslu Norrænu velferðarmiðstöðvarinnar. Í skýrslunni sjálfri á talan við neftóbak og/eða nikótínpúða, daglega eða sjaldnar, og byggir á svörum 369 einstaklinga. Neftóbakið sem þar er talið með framleiðir íslenska ríkið sjálft og selur í gegnum ÁTVR. Talan sem landlæknir vísar í er hvorki ný né erlend. Hún kemur úr Lýðheilsuvakt hennar eigin embættis frá árinu 2023. Embættið hefur síðan birt nýrri tölur, og samkvæmt þeim benda nýjustu mælingar til samdráttar í notkun nikótínpúða. Hvers vegna vísar landlæknir í gamla tölu í erlendri skýrslu í stað nýjustu gagna eigin embættis? Til samanburðar stillir landlæknir upp 9% samanburði frá Finnlandi. Sú tala mælir eingöngu munntóbak (snus) hjá 14–20 ára, hvorki nikótínpúða né sama aldurshóp. Landlæknir viðurkennir í hálfri setningu að tölurnar séu ekki sambærilegar, en stillir þeim engu að síður upp hlið við hlið. Það sem landlæknir nefnir ekki Samkvæmt sömu gögnum reykir ungt fólk á Íslandi langminnst á Norðurlöndum. Hjá 18–24 ára féllu reykingar um nær 40% á einu ári, milli 2018 og 2019, á sama tíma og nikótínpúðar og rafrettur ruddu sér til rúms. Er það ekki frétt sem lýðheilsuyfirvöld ættu að hafa áhuga á? Ný þróun ætti að vekja enn meiri athygli. Samkvæmt Íslensku æskulýðsrannsókninni tvöfölduðust sígarettureykingar meðal nemenda í 10. bekk, úr 2,3% árið 2024 í 4,6% árið 2026. Á sama tíma dróst notkun nikótínpúða saman, eftir að gjald var lagt á nikótínvörur í ársbyrjun 2025. Gögnin benda öll í sömu átt: þegar notkun tóbakslausra nikótínvara jókst, dró úr reykingum. Eftir að ríkið skattlagði tóbakslausar nikótínvörur, jukust reykingar aftur. Á þetta er hvergi minnst í grein landlæknis. Hvers vegna sleppir landlæknir þeim gögnum sem ekki styðja málflutning ráðherra? Hræðsluorð í stað áhættumats Landlæknir nefnir formaldehýð og króm í nikótínpúðum. Orðin hljóma ógnvekjandi og það er tilgangurinn. Nýlegt yfirlit í Frontiers in Public Health (2025) segir hins vegar að formaldehýð mælist í mjög litlu magni, oft við greiningarmörk. Samkvæmt þýsku áhættumatsstofnuninni (BfR) fáum við 1,5–14 mg af formaldehýði daglega úr venjulegri fæðu. Tíu nikótínpúðar innihalda samanlagt aðeins brot af því. Sama gildir um króm. Tíu púðar innihalda samanlagt um 1–2% af því krómi sem fullorðnir fá daglega úr fæðu. Eiturefnanefnd breskra stjórnvalda (COT) telur viðbótarinntöku af þessum efnum úr púðum litla og ekki eiturefnafræðilegt áhyggjuefni. Landlæknir nefnir einnig „vísbendingar“ um munnkrabbamein en viðurkennir í sömu andrá að frekari rannsókna sé þörf. Samkvæmt nýlegri yfirlitsgrein í Harm Reduction Journal (2024) eru engar faraldsfræðilegar rannsóknir til um tengsl nikótínpúða og munnkrabbameins. Á hverju byggir þá fullyrðing landlæknis í grein hennar? Sama gildir um bragðefni í rafrettum, sem landlæknir segir hafa „möguleg tengsl“ við alvarlega lungnasjúkdóma. Hún tilgreinir hvorki hvaða efni né hvaða sjúkdóma. Þekktustu dæmin um alvarlegan lungnasjúkdóm tengdan rafrettum eru tilfelli lungnaskaða sem komu upp í Bandaríkjunum 2019. Þau voru rakin til E-vítamín asetats í ólöglegum THC-vökvum, ekki til bragðefna í nikótínvökva. Bæði vítamín og THC eru þegar bönnuð í rafrettuvökva á Íslandi. Lungnaskaðinn sem rakinn var til ólöglegra THC-vökva kostaði tugi manna lífið. Þegar landlæknir gefur í skyn að bragðefni í nikótínvökva tengist alvarlegum lungnasjúkdómum án þess að tilgreina hvaða efni eða sjúkdóma, og gerir það til að styðja frumvarp ráðherra á tímum upplýsingaóreiðu, rýrir hún trúverðugleika eigin embættis og læknastéttarinnar allrar. Að banna það sama tvisvar Ég tek heilshugar undir markmið frumvarpsins. Nikótínvörur eiga ekki heima í höndum barna. En sala til barna yngri en 18 ára er þegar bönnuð með lögum. Umbúðir rafretta sem höfða til barna hafa verið bannaðar frá 2018 og umbúðir nikótínpúða frá 2022. Hámark á nikótíni er þegar bundið í lög og reglugerð. Krabbameinsvaldandi efni eru bönnuð. Hverja einustu vöru þarf að tilkynna til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) með fullri innihaldslýsingu og eiturefnafræðilegum gögnum áður en hún fer á markað, og smásala krefst leyfis. Ráðherra hefur haft heimild til að takmarka bragðefni í rafrettum í átta ár án þess að nýta hana. Þetta er vaktaður markaður, ekki villta vestrið sem landlæknir lætur í veðri vaka. Lausn ráðherra og landlæknis er samt að banna það sama aftur. Er ekki nóg að lögfesta bann einu sinni, og ef ekki - afhverju bönnum við þá óæskilega hluti ekki þrisvar sinnum? Eða hundrað sinnum? Vandinn er ekki skortur á lögum heldur skortur á eftirliti með þeim lögum sem þegar gilda. Dufland og fleiri innflytjendur og verslanir hafa bent á þetta í samráðsgátt stjórnvalda margsinnis síðustu ár. Svarið er alltaf það sama: nýjar reglur í stað þess að framfylgja þeim sem fyrir eru. Málsvari almennings eða ráðherra? Landlæknir viðurkennir sjálf að rafrettugufa innihaldi færri eiturefni en sígarettureykur, en þar staðnæmist hún. Fyrir fullorðinn reykingamann sem íhugar að skipta skiptir sá munur öllu máli. Lýðheilsustefna sem leggur skaðaminni vörur að jöfnu við sígarettur er engin lýðheilsustefna. Þetta er ekki séríslenskt vandamál. Karl Erik Lund, vísindamaður hjá norsku lýðheilsustofnuninni, hefur sýnt að Norðmenn telja munntóbak nær jafn skaðlegt og sígarettur, þvert á mat sérfræðinga, sem telja það um 90% minna skaðlegt. Hann gagnrýnir heilbrigðisyfirvöld fyrir að vera „svo hikandi“ við að leiðrétta ranghugmyndir sem þau vita af. Almenningur á rétt á réttum upplýsingum, ekki hræðsluáróðri. María Heimisdóttir tók við embætti af Ölmu Möller, sem nú er heilbrigðisráðherra fyrir Samfylkinguna, og var skipuð af Jóhanni Páli Jóhannssyni, flokksbróður Ölmu. Það gerir enn ríkari kröfu um að embættið sýni sjálfstæði. Þegar landlæknir skrifar til stuðnings frumvarpi forvera síns, á meðan það er til meðferðar á Alþingi, með rangri lykiltölu og samanburði sem stenst ekki skoðun, vaknar óhjákvæmilega spurningin: Er embættið faglegur ráðgjafi almennings eða málsvari ráðherrans? Um leið og landlæknisembættið verður pólitískt hætta ákvarðanir þess, tilmæli til lækna og upplýsingar til almennings að vera marktækar. Það er stórhættuleg þróun. Ég skora á landlækni að leiðrétta opinberlega rangfærslurnar í grein sinni og halda embættinu utan við pólitíska baráttu ráðherra. Höfundur er framkvæmdastjóri Dufland. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Embætti landlæknis Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna Nikótínvörur eru ört vaxandi ógn við heilsu okkar, ekki síst heilsu ungs fólks. Þótt dregið hafi mjög úr sígarettureykingum þá hefur notkun annarra nikótínvara, svo sem rafretta og nikótínpúða, aukist verulega, ekki síst meðal ungmenna. 16. október 2026 10:47 Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna Nikótínvörur eru ört vaxandi ógn við heilsu okkar, ekki síst heilsu ungs fólks. Þótt dregið hafi mjög úr sígarettureykingum þá hefur notkun annarra nikótínvara, svo sem rafretta og nikótínpúða, aukist verulega, ekki síst meðal ungmenna. 16. október 2026 10:47
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun