Körfubolti

Ræddu bann Veigars: „Hræði­legur tími“ en „heppinn með dóminn“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Veigar Páll Alexandersson hefur verið lykilmaður í liði Njarðvíkur.
Veigar Páll Alexandersson hefur verið lykilmaður í liði Njarðvíkur. vísir/Guðmundur

Árs leikbann Veigars Páls Alexanderssonar var til umræðu í Bónus Körfuboltakvöldi á föstudagskvöld. Menn skiptust á skoðunum um bannið.

Veigar Páll féll á lyfjaprófi í úrslitakeppninni í apríl í fyrra eftir að ADHD-lyf, sem hann hafði ekki undanþágu fyrir, greindist í sýni hans. Hann hafði tekið lyf sem hann var ekki með lyfseðil fyrir í prófum við háskólann.

Klippa: Bann Veigars til umræðu

Efni sem eru á bannlista WADA og Lyfjaeftirlitsins eru í flestum ADHD-lyfjum en í vikunni kom loks niðurstaða sem beðið hafði verið frá því í vor.

Veigar Páll var dæmdur í árs bann, líkt og hann greindi frá sjálfur á samfélagsmiðlum. Dómur yfir honum er ekki opinber enn, þar sem Veigar sjálfur, KKÍ og WADA hafa öll 21 dags frest til að áfrýja dómnum þar til hann verður gerður opinber.

Ómar Sævarsson þekkir að falla á lyfjaprófi en hann drakk orkudrykk sem innihélt efni á bannlista og fór í bann árið 2013.

„Þetta er örugglega búinn að vera hræðilegur tími fyrir þennan dreng. Þetta er búið að taka svo ótrúlega langan tíma og fólk að spyrja hann út í þetta. Þetta liggur á honum, þetta liggur á fjölskyldunni og öllum sem eru þarna í kring. Þannig að burtséð frá því hvað þetta er langt bann held ég að sé léttir að þetta sé komið út,“ segir Ómar í þættinum.

Jón Halldór Eðvaldsson segir Veigar heppinn að fara ekki í lengra bann vegna málsins.

„Ég veit ekki alveg hvernig maður á að horfa á þetta. Ég þekki fólkið hans. En hins vegar eru reglur í þessu. Það þarf að fylgja þessum reglum. Það skiptir engu máli þó það sé verið að greina mig, hvort ég sé með hjartasjúkdóm, sem ég hef lent í – á ég þá að fara að taka hjartalyf frá einhverjum sem ég þekki?“ spyr Jón Halldór.

„Ég ætla ekki að setja mig í einhvern dómarastól en hann gerði eitthvað sem hann átti ekki að gera, alveg 100 prósent. Hann sagðist í yfirlýsingunni vera þakklátur fyrir stuttan dóm. Mér fannst hann heppinn. Hann hefði getað fengið fjögur ár,“ bætir Jón við.

Umræðuna má sjá í spilaranum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×