Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar 26. október 2026 12:00 Rekstur Hafnarfjarðarbæjar er ekki sjálfbær. Það hefur raunar legið fyrir um nokkurn tíma. Bæði ársreikningur síðasta árs og árshlutauppgjör þess árs leiða svo í ljós að staðan hefur farið hratt versnandi. Rekstur bæjarins hefur á undanförnum árum hvílt á einskiptis tekjum vegna lóðasölu, þ.e. óvissum framtíðartekjum á kostnað raunhæfra forsenda. Á sama tíma var lítið aðhafst til að gera grunnrekstur bæjarins sjálfbæran. Samfylkingin varaði við þessari þróun allt síðasta kjörtímabil og nú er alvarleg fjárhagsstaða bæjarins að raungerast. Komið að skuldadögum Núna hefur það gerst að lóðasala hefur dregist verulega saman og veikleikinn í rekstrinum kemur fram af fullum þunga. Reksturinn skilar litlu til fjárfestinga og afborgana lána og skuldir hafa aukist verulega á síðustu árum. Nú er einfaldlega komið að skuldadögum þar sem við súpum seyðið af fjárhagsáætlunum sem byggðu að stóru leyti á óvissum framtíðartekjum og tíminn var ekki nýttur til þess að taka á undirliggjandi vanda í rekstri bæjarins. Þetta eru meginástæðurnar fyrir þeirri grafalvarlegu fjárhagsstöðu sem Hafnarfjörður stendur frammi fyrir í dag en ekki tímabundinn samdráttur í lóðasölu. Skuldir á hvern íbúa hæstar í Hafnarfirði á höfuðborgarsvæðinu Þessi alvarlega fjárhagsstaða Hafnarfjarðar hefur verið fyrirsjáanleg um nokkurt skeið. Skuldir jukust verulega á síðasta kjörtímabili og heildarskuldir í krónum fóru úr rúmum 46 milljörðum króna í 67 milljarða króna. Reksturinn er veikur og skilar litlu til afborgana lána og fjárfestinga og veltufé frá rekstri hefur raunar verið undir 4% af tekjum síðustu fimm ár og alltaf verið undir viðmiðum eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga. Þetta þýðir einfaldlega að reksturinn skilar ekki nógu miklum peningum til að standa undir afborgunum lána og hvað þá nýrri fjárfestingu. Bærinn reiðir sig því á lántöku, bæði til að fjármagna afborganir langtímalána og nýja fjárfestingu. Á sama tíma hefur fjárfesting farið úr 6-7% af tekjum í 17%. Niðurstaðan er því að skuldaviðmið hefur rokið upp á síðustu tveimur árum, eða úr 84% í 104% og skuldir á hvern íbúa á höfuðborgarsvæðinu eru raunar hvergi hærri en í Hafnarfirði, eða rúmlega 2 milljónir á mann samanborið við 1,5 milljón á mann í Reykjavík. Hálfsársuppgjör staðfestir erfiða og þrönga stöðu Framlagning hálfsársuppgjörs í september síðastliðnum staðfesti svo þessa þróun rækilega. A-hluti bæjarsjóðs, sá hluti sem rekinn er fyrir skattfé, var þá rekinn með 2,3 milljarða króna halla en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 435 milljóna króna afgangi. Frávikið á rekstri A-hluta nemur því um 2,8 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins. Veltufé frá rekstri A-hluta nam einungis 58 milljónum króna sem er 344 milljónum krónum undir áætlun. Niðurstaða árshlutauppgjörs 2026 kemur í kjölfar neikvæðrar niðurstöðu ársreiknings 2025 og skerpir á þeirri þróun sem við sáum á rekstri bæjarins í fyrra. Þá var rekstur A-hluta neikvæður um rúmlega 1,1 milljarð króna og veltufé frá rekstri A-hluta var 1,4% af rekstri en viðmið eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga var 5,2%. Fjárhagsáætlun byggi á raunhæfum forsendum en ekki óvissum framtíðartekjum Þrátt fyrir að Samfylkingin hafi allt síðasta kjörtímabil bent á að rekstur A-hluta bæjarsjóðs væri ósjálfbær náði umræða um fjármál annarra sveitarfélaga en Reykjavíkur litlu flugi í kosningabaráttunni í vor. Skilaboðin frá meirihluta síðasta kjörtímabils voru enda þau að fjárhagur Hafnarfjarðar stæði traustum fótum – að það væri einfaldlega ekkert að frétta. Við okkur blasir hins vegar allt önnur mynd í dag og við súpum nú seyðið af fjármálastjórn þar sem fjárhagsáætlunargerð byggði á óvissum framtíðartekjum á kostnað raunhæfra forsenda. Af þeirri leið verðum við að snúa – og það strax. Stöðva verður áframhaldandi hallarekstur og skuldasöfnun Nýs meirihluta Samfylkingar, Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks bíður því að takast á við þennan mikla vanda en til þess að gera það verður að taka fjárhagsáætlunargerðina föstum tökum. Markmið okkar og þeirrar vinnu sem farin er af stað er að skapa varanlegt jafnvægi í rekstri, draga úr viðkvæmni fyrir tekjusveiflum og tryggja grunnþjónustu við bæjarbúa til framtíðar. Það er mikilvægt að þetta takist því áframhaldandi hallarekstur og skuldasöfnun munu koma niður á framtíðarkynslóðum og mikilvægri þjónustu við bæjarbúa af enn meiri þunga verði ekki gripið í taumana í tæka tíð. Rétti tíminn til að gera það er núna og Samfylkingin er tilbúin í það verk! Höfundur er bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Árni Rúnar Þorvaldsson Mest lesið Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun