Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar 26. október 2026 11:46 Hallgrímskirkja er fjölsótt og vinsæl. Hún vekur athygli ferðalanga sem koma akandi frá Keflavík. Kirkjuturninn og kirkjuskipið gnæfa yfir borg og byggð og móta borgarlínuna. Þegar farið er um Kjalarnes þykir mörgum töfrandi að sjá Hallgrímskirkjuturn bera nákvæmlega við Keili. Arkitektaskólar senda fólk til Íslands til að skoða kirkjuna og byggingarlist Guðjóns Samúelssonar. Ferðamenn koma í kirkjuna meðal annars vegna þess að fjölmiðlar heimsins hafa lyft henni í hæðir topplistanna. Árið 2015 valdi Architectural Digest Hallgrímskirkju sem eina af tuttugu fegurstu trúarbyggingum heims. Ári síðar útnefndi The Guardian kirkjuna sem eina af tíu mikilvægustu íhugunarhúsum heims. Ferðavefurinn Big Seven Travel birtir árlega lista yfir fimmtíu fallegustu byggingar heims. Á listanum árið 2021 var Hallgrímskirkja í 38. sæti. Ekkert annað hús á Norðurlöndunum komst inn á hann. Sem sé Hallgrímskirkja var samkvæmt þessum lista fegursta hús Norðurlanda. Mörgum þykir óperuhúsið í Sydney fagurt en Hallgrímskirkju var þó raðað ofar það árið! Hallgrímskirkja er orðin klassík. Árið 2021 valdi ferðatímarit Condé Nast Traveler Hallgrímskirkju eina af sautján fegurstu kirkjum heims. Á árunum 2024–2025 skipaði National Traveller henni í áttunda sæti á lista yfir tíu fegurstu kirkjur veraldar. Árið 2025 varð svo Hallgrímskirkja í öðru sæti á lista Time Out yfir 24 fegurstu byggingar heims, næst á eftir Taj Mahal á Indlandi. Þar með var hún efst allra evrópskra bygginga á listanum. Árið 2026 skipaði ferðavefurinn Love Exploring Hallgrímskirkju í níunda sæti yfir fegurstu byggingar heims. Kirkjan, sem var umdeild og sumum þótti framandi í íslenskri byggingarlist, er orðin eitt þekktasta og dáðasta kennileiti landsins. Fegurð og gildi Hallgrímskirkju verður ekki aðeins mælt í sætum á alþjóðlegum listum. Kirkjan gegnir mörgum hlutverkum. Hún er sóknarkirkja, þjóðarhelgidómur, fang listviðburða og ljóshús stórviðburða. Hún er áfangi ferðalanga, pílagrímastaður. Kirkjan hefur orðið mörgum hlið himins og margir segjast þar hafa náð að tengja við uppsprettur lífsins, sjálft sig og verðandi tímans. Alla daga sækir fólk í þetta himinhlið til að tengja við djúpið. Í kirkjunni er gott að íhuga og gott samband. Það sem mikilvægast er að kirkjan er hús Guðs. Hún er ekki utan þjónustusvæðis. Hún er falleg því hún þjónar því hlutverki að vera fundarstaður Guðs og manna. Til hamingju Íslendingar með fjörutíu ára afmæli Hallgrímskirkju 26. október, 2026. Höfundur er prestur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Árni Þórðarson Mest lesið Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Sjá meira
Hallgrímskirkja er fjölsótt og vinsæl. Hún vekur athygli ferðalanga sem koma akandi frá Keflavík. Kirkjuturninn og kirkjuskipið gnæfa yfir borg og byggð og móta borgarlínuna. Þegar farið er um Kjalarnes þykir mörgum töfrandi að sjá Hallgrímskirkjuturn bera nákvæmlega við Keili. Arkitektaskólar senda fólk til Íslands til að skoða kirkjuna og byggingarlist Guðjóns Samúelssonar. Ferðamenn koma í kirkjuna meðal annars vegna þess að fjölmiðlar heimsins hafa lyft henni í hæðir topplistanna. Árið 2015 valdi Architectural Digest Hallgrímskirkju sem eina af tuttugu fegurstu trúarbyggingum heims. Ári síðar útnefndi The Guardian kirkjuna sem eina af tíu mikilvægustu íhugunarhúsum heims. Ferðavefurinn Big Seven Travel birtir árlega lista yfir fimmtíu fallegustu byggingar heims. Á listanum árið 2021 var Hallgrímskirkja í 38. sæti. Ekkert annað hús á Norðurlöndunum komst inn á hann. Sem sé Hallgrímskirkja var samkvæmt þessum lista fegursta hús Norðurlanda. Mörgum þykir óperuhúsið í Sydney fagurt en Hallgrímskirkju var þó raðað ofar það árið! Hallgrímskirkja er orðin klassík. Árið 2021 valdi ferðatímarit Condé Nast Traveler Hallgrímskirkju eina af sautján fegurstu kirkjum heims. Á árunum 2024–2025 skipaði National Traveller henni í áttunda sæti á lista yfir tíu fegurstu kirkjur veraldar. Árið 2025 varð svo Hallgrímskirkja í öðru sæti á lista Time Out yfir 24 fegurstu byggingar heims, næst á eftir Taj Mahal á Indlandi. Þar með var hún efst allra evrópskra bygginga á listanum. Árið 2026 skipaði ferðavefurinn Love Exploring Hallgrímskirkju í níunda sæti yfir fegurstu byggingar heims. Kirkjan, sem var umdeild og sumum þótti framandi í íslenskri byggingarlist, er orðin eitt þekktasta og dáðasta kennileiti landsins. Fegurð og gildi Hallgrímskirkju verður ekki aðeins mælt í sætum á alþjóðlegum listum. Kirkjan gegnir mörgum hlutverkum. Hún er sóknarkirkja, þjóðarhelgidómur, fang listviðburða og ljóshús stórviðburða. Hún er áfangi ferðalanga, pílagrímastaður. Kirkjan hefur orðið mörgum hlið himins og margir segjast þar hafa náð að tengja við uppsprettur lífsins, sjálft sig og verðandi tímans. Alla daga sækir fólk í þetta himinhlið til að tengja við djúpið. Í kirkjunni er gott að íhuga og gott samband. Það sem mikilvægast er að kirkjan er hús Guðs. Hún er ekki utan þjónustusvæðis. Hún er falleg því hún þjónar því hlutverki að vera fundarstaður Guðs og manna. Til hamingju Íslendingar með fjörutíu ára afmæli Hallgrímskirkju 26. október, 2026. Höfundur er prestur.
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun