Viðskipti innlent

„Ís­land er demanturinn í kórónunni í okkar fé­lagi“

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Ólafur Orri Ólafsson, forstjóri Samskipa.
Ólafur Orri Ólafsson, forstjóri Samskipa. Samskip

„Ísland er demanturinn í kórónuninni í okkar félagi. Við munum einbeita okkur að Íslandi, til þess að efla okkar starfsemi hérna og bæta þjónustu til kúnnans.“

Þetta segir Ólafur Orri Ólafsson, forstjóri samstæðu Samskipa, í samtali við fréttastofu í kjölfar þess að allt hlutafé félagsins hafi verið selt til spænsks félags í gær. Að hans mati mun sala félagsins einnig hagnast íslenskum viðskiptavinum.

Spænska skipafélagið Boluda Shipping og Samskip undirrituðu kaupsamning á Samskipum og dótturfélögum þess í gær. Samskip voru stofnuð árið 1990 en byggðu á grunni skipadeildar Sambands íslenskra samvinnufélaga og er nú eitt af leiðandi flutningafyrirtækjum Evrópu.

Hjónin Ólafur Ólafsson og Ingibjörg Kristjánsdóttir voru langsamlega stærstu eigendur skipafélagsins rótgróna en sonur þeirra Ólafur Orri Ólafsson var í janúar ráðinn nýr forstjóri samstæðu félagsins og verður hann áfram forstjóri samstæðunnar undir nýjum eigendum.

Snýst ekki um tilboðið heldur tækifærin

Ólafur Orri segir í samtali við fréttastofu að salan sé afurð þriggja til fjögurra ára farsæls viðskiptasambands.

„Í raun og veru var enginn að leitast eftir því að selja fyrirtækið. Við erum búin að vera að vinna með Boluda síðustu fjögur ár. Ég kynntist Ignacio Boluda, sem er stjórnarformaður Boluda og er einnig fyrrverandi stjórnarformaður Real Madrid. Ég kynntist honum í gegnum okkar viðskipti og við höfum verið í samstarfi síðan. Við höfum yfir þennan tíma ræktað gott samband og verið í góðu samstarfi. Við höfum alltaf horft á það þannig að þetta eru mjög lík félög sem vinna vel saman.“

Úr samstarfinu hafi sprottið upp óformlegar samræður um hvernig félögin gætu unnið frekar saman til að efla samstarfið.

„Þá kom þetta á borðið.“

Og var þetta þá þannig tilboð að það var of gott til að hafna því?

„Nei. Í raun og veru var þetta ekki svo mikið um tilboðið. Þetta er meira um það að við áttuðum okkur algjörlega á því að þetta er nákvæmlega það sem er best fyrir Samskip. Þetta er best fyrir félagið, fyrir alla starfsemina og alla starfsmennina. Við erum með tæplega 1.500 starfsmenn um allan heim.“

Muni hagnast viðskiptavinum og atvinnulífinu

Að hans mati mun salan einnig hafa jákvæð áhrif á viðskiptavini Samskipa og íslenskt atvinnulíf.

„Þetta er stórt og flott skref til að efla okkar kerfi. Saman munum við mynda stærsta flutningakerfi í Evrópu og það er bara gott fyrir kúnnann. Það er gott fyrir íslenskt atvinnulíf,“ segir hann og heldur áfram:

„Það mun mjög lítið breytast frá degi til dags þegar þetta byrjar. Samningurinn í raun tekur gildi fyrir enda ársins. Boluda-fjölskyldan hefur skuldbundið sig til að fjárfesta í félaginu og Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi. Við munum einbeita okkur að Íslandi, til þess að efla okkar starfsemi hérna og bæta þjónustu til kúnnans.“

Hann segir að stærðarhagkvæmni muni efla fyrirtækið til að bæta þjónustu og lækka verð.

Hann segir tíðindin hafa lagst einkar vel í starfsmenn og fólkið á gólfinu hjá Samskipum.

„Þessu hefur verið tekið rosalega vel. Ég hef fengið frábær viðbrögð. Fólk er spennt. Það skilur betur en allir hvað þetta þýðir fyrir félagið. Sem er meiri kraftur og frekari tækifæri til þess að vaxa.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×